Vinur

3048. Vinur ex Øyglimt. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Vinur, sem Sjóferðir Arnars á Húsavík gera út, kemur hér að landi úr hvalaskoðunarferð jóladagsins þar sem farþegar náðu að berja háhyrninga augum á Skjálfanda. Vinur var úr smíðaður úr plasti árið 1980 og hét áður Øyglimt en Sjóferðir Arnars keypti bátinn frá Noregi fyrr á árinu. Báturinn er rúmlega … Halda áfram að lesa Vinur

Sólberg ÓF 1

2917. Sólberg ÓF 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Frystitogarinn Sólberg ÓF 1 kom til olíutöku í Krossanesi á dögunum en það gerir hann jafnan í lok veiðiferðar. Sólberg ÓF 1 kom nýr til landsins í maí mánuði árið 2017 en hann var smíðaður fyrir Ramma hf. í Tersanskipasmíðastöðinni í Tyrklandi.   Sólberg ÓF 1 er 79,85 metrar … Halda áfram að lesa Sólberg ÓF 1

Gleðileg jól – Merry christmas – God jul – Feliz Navidas

Við Húsavíkurhöfn á Þorláksmessumorgni 20225. Með þessari mynd sem tekin var á Húsavík í gærmorgun fylgir jólakveðja til allra þeirra sem sækja síðuna heim. Merry Christmas to you all who visit this site with thanks for stopping by. God jul og tusinde tak til alle dem, der besøger hjemmesiden.  Feliz Navidad a todos los que visitan este sitio … Halda áfram að lesa Gleðileg jól – Merry christmas – God jul – Feliz Navidas

Tekið við endanum

1487. Alli Júl ÞH 5 ex Ásbjörg RE 79. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Þessi mynd var tekin í desembermánuði árið 1999 og sýnir Þórð heitinn Ásgeirsson taka á móti endanum hjá Alla Júl ÞH 5 sem sonarsonur hans, Þórður Birgisson, gerði út. Upphaflega hét báturinn Ásbjörg ST 7 frá Hólmavík en hún var síðust í röð 50 … Halda áfram að lesa Tekið við endanum

Hafdís ÞH 12

5434. Hafdís ÞH 12. Ljósmynd Sigurgeir Smári Harðarson. Ætla má að það sé um hálf öld síðan Geiri Harðar tók þessa mynd af Hafdísi ÞH 12 á Skjálfanda. Baldur Pálsson bátasmiður á Húsavík smíðaði Hafdísi ÞH 12 fyrir Jóstein Finnbogason árið 1951 og var hún sveinstykki Baldurs í bátasmíðinni. Hafdís var smíðuð úr furu og eik, … Halda áfram að lesa Hafdís ÞH 12