2890. Akurey AK 10. Skuttogarinn Akurey AK 10 kemur hér til hafnar í Reykjavík. Akurey var smíðuð árið 2017 í Tyrklandi og kom til heimahafnar í Reykjavík 20.júní 2017. Hún er eitt þriggja systurskipa sem HB Grandi lét smíða í Céliktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri … Halda áfram að lesa Akurey AK 10
Flokkur: Togarar
Drangey SK 2
2893. Drangey SK 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Drangey SK 2 er einn af fjórum skuttogurum sem Cemre skipasmíðastöðin í Tyrklandi smíðaði fyrir Íslendinga og afhentu á árinu 2017. Drangey kom til heimahafnar á Sauðárkróki 19. ágúst það ár og var þessi mynd tekin þá. Togararnir eru 62,49 metra langir og 13,54 metra breiðir og mælast 2081 BT. Togararnir eru 62,49 metra … Halda áfram að lesa Drangey SK 2
Björg EA 7
2894. Björg EA 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Þessa mynd tók ég í fyrra þegar Samherjatogarinn Björg EA 7 kom til heimahafnar á Akureyri eftir siglingu frá Tyrklandi þar sem hún var smíðuð. Þetta var 31. október og kom hún síðust fjögurra systurskipa í flotann. Með því að smella á myndina er hægt að skoða … Halda áfram að lesa Björg EA 7
Sólberg ÓF 1
2917. Sólberg ÓF 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Sólberg ÓF 1 á siglingu í mynni Ólafsfjarðar 19. maí í fyrra en þá kom það til landsins í fyrsta skipti. Þessi glæsilegi frystitogari er hannaður af Skipsteknisk í Noregi en smíðaður fyrir Rammann hf. í Tersanskipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Sólberg ÓF 1 er 79,85 metrar að lengd, 15,4 metrar á … Halda áfram að lesa Sólberg ÓF 1



