Ólafur HF 51

2781. Ólafur HF 51. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Í júnímánuði árið 2009 kom Ólafur HF 51 til Húsavíkur en Karel Karelsson skipstjóri var á hringferð til að kynna þennan nýja bát fyrir útgerðar- og sjómönnum. Báturinn er af gerðinni Cleopatra 31 og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði. Hann hefur borið nafnið Dufan BA 122 … Halda áfram að lesa Ólafur HF 51

Máni ÞH 98

1920. Máni ÞH 98 ex Máni EA 36. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2016. Máni ÞH 98 kemur hér til hafnar á Húsavík úr línuróðri haustið 2013 en hann var smíðaður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1988. Máni hét upphaflega Þjóðólfur ÍS 86 frá Bolungarvík en þaðan var hann seldur til Keflavíkur árið 2004. Í Keflavík fékk báturinn … Halda áfram að lesa Máni ÞH 98

Háey I

2995. Háey I ÞH 295. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Línubáturinn Háey I ÞH 295 tekur hér olíu í haustsólinni á Húsavík en myndin var tekin í septembermánuði þessa árs. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution