Vésteinn að draga línuna í dag

2908. Vésteinn GK 88. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af línubátnum Vésteini GK 88 þar sem hann var að draga línuna rétt utan við Grindavík í dag. Að sögn ljósmyndarans var mokfiskirí hjá köllunum og þurftu þeir að fara inn til Grindavíkur um hádegisbilið þar sem landað var um 12 … Halda áfram að lesa Vésteinn að draga línuna í dag

Auður Vésteins á landleið í fyrradag

2888. Auður Vésteins SU 88. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af línubátnum Auði Vésteins SU 88 í fyrradag en báturinn var að koma til hafnar í Grindavík. Auður Vésteins SU 88 er af gerðinni Cleopatra 50, smíðaður hjá Trefjum árið 2014. 2888. Auður Vésteins SU 88 . Ljósmyndir Jón Steinar … Halda áfram að lesa Auður Vésteins á landleið í fyrradag

Dagrún að draga netin

2617. Dagrún HU 121 ex Bergvík KE 22. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessa myndasyrpur í dag af netabátnum Dagrúnu HU 121 þar sem hún var að draga netin úti fyrir Skagaströnd. Dagrún hét upphaflega Daðey GK 777 frá Grindavík og var yfirbyggður línubátur smíðaður hjá Mótun ehf í Njarðvík árið 2004. … Halda áfram að lesa Dagrún að draga netin