Húsavíkurhöfn í dag

Bátar við bryggju á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér koma myndir sem teknar voru um miðjan dag í dag eftir að vind fór að lægja við Skjálfanda. Það gekk á með úrhelli og hvassviðri í morgun, sjávarstaða var há og ölduhæð mikil. Við Húsavíkurhöfn í dag. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson. Með því að smella … Halda áfram að lesa Húsavíkurhöfn í dag

Þokuloft við ströndina

IMO 9160334. Vechtborg við Bökugarðinn á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Það var þoka á Skjálfandaflóa í morgun og teygði hún sig inn á Húsavíkina um tíma en henni létti þegar líða tók á daginn. Meðfylgjandi myndir voru teknar á milli kl. 10 og 11. Flutningaskip lá við Bökugarðinn og þegar dróananum var lyft nokkuð … Halda áfram að lesa Þokuloft við ströndina

Húsavíkurhöfn

Við Húsavíkurhöfn 26. júní 2021. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér birtast myndir sem teknar voru við Húsavíkurhöfn sl. laugardag en það var aldeilis blíðan þá. Svo sem ekkert meira að segja um það og látum myndirnar tala sínu máli. Við Húsavíkurhöfn 26. júní 2021. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson. Með því að smella á myndirnar er hægt að … Halda áfram að lesa Húsavíkurhöfn

Við bryggju á Húsavík

Við bryggju á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bryggjumynd frá því um miðjan níunda áratug síðustu aldar tekin á Húsavík. Sæborg ÞH 55 í forgrunni og Skálaberg ÞH 244 utan á henni. Júlíus Havsteen ÞH 1 fyrir aftan bátana og í bakgrunni Kolbeinsey ÞH 10. Það sést í skutinn á æljóni EA 55 sem var í … Halda áfram að lesa Við bryggju á Húsavík

Lokadagur vetrarvertíðar 11. maí

Sandgerði á vetravertíð árið 1988. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Í dag, 11. maí, er lokadagur vetrarvertíðar samkvæmt gömlu tímatali og af því tilefni birtist hér mynd af vertíðarbátum við bryggju í Sandgerði. Þarna má þekkja Mumma GK 120, Unu í Garði GK 100, Freyju GK 364 og Sandgerðing GK 268 auk smærri báta. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Lokadagur vetrarvertíðar 11. maí

Strandveiðibátur í Húsavíkurhöfn

Frá Húsavíkurhöfn 2. maí 2021. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd var tekin sl. sunnudag þegar strandveiðisjómenn voru að undirbúa sig fyrir fyrsta róður tímabilsins en hefja mátti veiðar 3. maí. Þarna má sjá Jón Jak ÞH 8 fara frá bryggjunni eftir að hafa tekið ís en það er Guðmundur Annas Jónsson sem gerir hann út. … Halda áfram að lesa Strandveiðibátur í Húsavíkurhöfn

Við Húsavíkurhöfn að morgni skírdags

Við Húsavíkurhöfn að morgni skírdags. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessar myndir sem nú birtast voru teknar í morgun við Húsavíkurhöfn og eins og sjá má var veðurblíðan algjör. Við Húsavíkurhöfn að morgni skírdags. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson 2021. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking on the … Halda áfram að lesa Við Húsavíkurhöfn að morgni skírdags

Líf og fjör í Hafnarfjarðarhöfn

Ljósafell SU 70 og Cuxxhaven NC 100 við bryggju í Hafnarfirði. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Það var mikið um að vera í Hafnarfjarðarhöfn í gær em Magnús Jónsson tók meðfylgjandi myndir sem við látum bara tala sínu máli. Í Hafnarfirði í gær. Ljósmyndir Magnús Jónsson. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða … Halda áfram að lesa Líf og fjör í Hafnarfjarðarhöfn

Bátar við bryggju í Sandgerði

Bátar við bryggju í Sandgerði. Ljósmynd Hörður Harðarson. Þessa mynd tók Höddi vinur minn, þá skipverji á Arney KE 50, í Sandgerðishöfn um árið. Sýnir hún nokkra báta við bryggju og þar ber mest á Hafnarbergi RE 404. Fyrir innan það eru Víðir II GK 275 og Mummi GK 120. Ofar við bryggjuna eru innst … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju í Sandgerði

Húsavíkurhöfn á Sjómannadaginn 1969

Bátar við bryggju á Húsavík á Sjómannadaginn árið 1969. Ljósmynd Sigurður Pétur Björnsson (Silli) Þessa skemmtilegu mynd tók Silli á Sjómannadaginn árið 1969 og sýnir hún Húsavíkurbáta við bryggju. Þarn a má m.a sjá Kristjón Jónsson SH 77 sem síðar fékk nafnið Kristbjörg ÞH 44 fremst við bryggjuna en báturinn var keyptur til Húsavíkur snemma … Halda áfram að lesa Húsavíkurhöfn á Sjómannadaginn 1969