Bátar við Suðurgarðinn

Bátar við Suðurgarðinn á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það hefur snjóað talsvert á Húsavík síðustu daga en þessi mynd var tekin um miðjan dag í dag. Þarna má sjá nokkra báta liggja við Suðurgarðinn í Húsavíkurhöfn. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on … Halda áfram að lesa Bátar við Suðurgarðinn

Við bryggju í Þorlákshöfn

Bátar við bryggju í Þorlákshöfn sumarið 2004. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggja við bryggju í Þorlákshöfn fjórir bátar sem allir eru farnir í pottinn. Myndin var tekin sumarið 2004 og á henni eru Klængur ÁR 20, Jón á Hofi Ár 62, Jóhanna ÁR 206, Fróði ÁR 33 og Arnar ÁR 55. Allir smíðaðir í Noregi … Halda áfram að lesa Við bryggju í Þorlákshöfn

Ljósin prýða

Við Húsavíkurhöfn í kvöld. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þá eru jólaseríur komnar upp á nokkrum hvalaskoðunarbátum á Húsavík en ekki veitir af að lífga aðeins upp á skammdegið. Og til að bæta um betur voru norðurljós á himni í kvöld en í forgrunni myndar er Norðursiglingarbáturinn Náttfari og fjær Sylvía sem Gentle Giants gerir út. Með … Halda áfram að lesa Ljósin prýða

Síldarbátar við bryggju á Eskifirði

Síldarbátar við bryggju á Eskifirði. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1984. Hér gefur að líta nokkra síldarbáta við bryggju á Eskifirði haustið 1984. Sæberg SU 9, sem er þarna stærst báta, gæti þó hafa verið á haustloðnu. Hinir eru fv. heimabáturinn Votaberg SU 14, Hringur GK 18 frá Hafnarfirði og saman liggja þrír Þorlákshafnarbátar. Innstur er Ísleifur … Halda áfram að lesa Síldarbátar við bryggju á Eskifirði

Húsavíkurhöfn á fyrri hluta níunda áratugsins

Við Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hér kemur mynd Hreiðars Olgeirssonar frá því á níunda áratug síðustu aldar, sennilega 1984 frekar en 5. Þarna má sjá við bryggju Dagfara, Geira Péturs, Kristbjörgu, Sigþór, Skálaberg, Björgu Jónsdóttur og Sæljón EA 55 auk húsvískra smábáta. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri … Halda áfram að lesa Húsavíkurhöfn á fyrri hluta níunda áratugsins

Við Húsavíkurhöfn í kvöld

Við Húsavíkurhöfn í kvöld. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Mynd sú er nú birtist var tekin við Húsavíkurhöfn í kvöld og er hvalaskoðunarbáturinn Garðar í forgrunni. Lognið var algjört og ljósin við höfnina spegluðust fallega í sjónum. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images … Halda áfram að lesa Við Húsavíkurhöfn í kvöld

Mímir, Sigþór og Geiri Péturs

1694. Mímir RE 3, 185. Sigþór ÞH 100, 1825. Geiri Péturs ÞH 344. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd sýnir skólaskipið Mími RE 3, Sigþór ÞH 100 og Geira Péturs ÞH 344 við bryggju á Húsavík. Myndin var tekin að haustlagi, sennilega ca. 1989. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Mímir, Sigþór og Geiri Péturs