Selfoss ex Shopia. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Selfoss, skip Eimskipafélags Íslands hf., er á Húsavík í dag en það kemur hingað á tveggja vikna fresti. Selfoss er 700 gámaeininga skip, 130 metra langur, og siglir undir færeyskum fána. Eimskip keypti skipið, sem smíðað var 2008, árið 2017 en það hét áður Sophia. Með því að smella … Halda áfram að lesa Selfoss við Bökugarðinn
Flokkur: Flutningaskip
Valentina í höfn á Húsavík
Valentina ex Nicola. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Valentina er í Húsavíkurhöfn í dag og losar hráefnisfarm til PCC á Bakka. Skipið, sem áður hét Nicola, var smíðað árið 2000 og er 95,16 metrar að lengd. Breiddin er 13,17 metrar og mælist skipið 2,998 GT að stærð. Valentina siglir undir flaggi Antigua & Barbuda og heimahöfnin … Halda áfram að lesa Valentina í höfn á Húsavík
Pioner við Bökugarðinn
Pioner við Bökugarðinn í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Rússneska flutningaskipið Pioner kom til Húsavíkur snemma í morgun með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Pioner kom hingað fyrir tæpu ári og þá skrifaði ég: Skipið var smíðað 1997 og er með heimahöfn í Arkhangelsk. Lengd þess er 103 metrar og breiddin 16 metrar. Skráð 3893 GT … Halda áfram að lesa Pioner við Bökugarðinn
Western Rock á Húsavík
Western Rock. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Flutningaskipið Western Rock kom til Húsavíkur í marsmánuði 2018 með tæki og tól fyrir Eimskip. Um var að ræða þann búnað sem notaður er til að þjónusta kísilver PCC á Bakka en Eimskip sér um þann verkþátt sem snýr að upp- og útskipun. Western Rock er glænýtt skip sem var … Halda áfram að lesa Western Rock á Húsavík
Merkur á Húsavík
Merkur ex Carolyn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Flutningaskipið Merkur liggur hér við Bökugarðinn í marsmánuði árið 2012 og losar farm sinn á land. Merkur, sem heitir í dag að ég held Merkur 1, var smíðað árið 1974. Það er 76 metra langt, 12 metra breitt og mælist 1.872 GT að stærð. Hét upphaflega Dori Bres … Halda áfram að lesa Merkur á Húsavík
Brúarfoss
Brúarfoss á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Brúarfoss siglir hér inn Skjálfandaflóa í febrúarmánuði 2017. Brúarfoss var smíðaður 1992 og er 126,6 metra langur og 20,5 metra breiður. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
Wilson Stadt við Bökugarðinn
Wilson Stadt ex Linito. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Wilsonfjölskyldan hedlur áfram að koma með hráefni til PCC á Bakka og í dag liggur Wilson Stadt við Bökugarðinn þar sem uppskipun fer fram. Skipið var smíðað árið 2000, siglir undir Maltneskum fána með heimahöfn í Walletta. Lengd þess er 113 metrar og breiddin 15 metrar. Mælist 4.200 … Halda áfram að lesa Wilson Stadt við Bökugarðinn
Wilson Mersin
Wilson Mersin ex Ramnes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Wilson Mersin kom til Húsavíkur snemma í morgun með hráefnisfarm til PCC á Bakka. Wilson Mersin var smíðað árið 1981 og er 107 metra langt og 15 metra breitt. Mælist 3,937 GT að stærð. Skipið siglir undir fána Kýpur með heimahöfn í Limassol. Eins og áður segir … Halda áfram að lesa Wilson Mersin
Wilson North
Wilson North við Bökugarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Wilson North liggur við Bökugarðinn í þessum skrifuðu orðum og losar hráefnisfarm til PCC á Bakka. Skipið er 123 metrar á lengd og 16 metra breitt. Mælist 6,118 GT að stærð. Wilson North var smíðað árið 2010 og siglir undir Maltnesku flaggi með heimahöfn í Walletta. Með … Halda áfram að lesa Wilson North
Skógafoss á Húsavík
Skógafoss við Bökugarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Skógafoss Eimskipafélagsins kom til Húsavíkur upp úr miðnætti í gær og lagðist að Bökugarðinum þar sem upp- og útskipun fer fram. Skógafoss var smíðaður árið 2007 og hét Ice Bird til ársins 2011. Hann er 130 metrar að lengd og 20,6 metra breiður. Mælist 7.545 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Skógafoss á Húsavík









