Lagarfoss. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hólmgeir Austfjörð tók þessa mynd af Lagarfossi í gær er skipið beið þessa að komast til hafnar í Vestmannaeyjum. Lagarfoss var smíðaður árið 2014 og er 141 metrar að lengd. Breidd hans er 23 metrar og hann mælist 10,106 GT að stærð. Lagarfoss siglir undir færeysku flaggi með heimahöfn í … Halda áfram að lesa Lagarfoss
Flokkur: Flutningaskip
Vancouverborg við Bökugarðinn
IMO 9213741. Vancouverborg við Bökugarðinn í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hollenska flutningaskipið Vancouverborg kom til Húsavíkur í gærkveldi og lagðist að Bökugarðinum. Skipið, sem kom með hráefnisfarm til PCC á Bakka, siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. Vancouverborg var smíðað árið 2001 og er 6.361 GT að tærð. Lengdin er 132 metrar og … Halda áfram að lesa Vancouverborg við Bökugarðinn
BBC Lagos kom til Húsavíkur í dag
IMO 9570668. BBC Lagos. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið BBC Lagos sigldi inn Skjálfandann í veðurblíðu dagsins og lagðist að Norðurgarðinum á Húsavík. Þar biðu skipsins vinnubúðir sem skipa á um borð í það. BBC Lagos var smíðað í Kína árið 2012 og er 7,138 GT að stærð. Lengd þess er 131 metrar en breiddin … Halda áfram að lesa BBC Lagos kom til Húsavíkur í dag
Virginiaborg kom til Húsavíkur nú undir kvöld
IMO 9234290. Virginiaborg og Sleipnir. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið Virginiaborg kom til Húsavíkur nú undir kvöld og tók Sleipnir á móti því. Virginiaborg kom með hráefnisfarm til PCC á Bakka og lagðist að Bökugarðinum en rétt áður hafði Felix lagt úr höfn. Virginiaborg var smíðað árið 2001 og er 6.361 GT að stærð. Lengd … Halda áfram að lesa Virginiaborg kom til Húsavíkur nú undir kvöld
Selfoss og Felix á Skjálfanda
IMO 9433456. Selfoss (fjær) og IMO 9180877. Felix á Skjálfanda í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Flutningaskipið Selfoss kom til Húsavíkur í dag en skömmu áður hafði flutningaskipið Felix sem legið hafði við Bökugarðinn farið frá og lagst við akkeri. Selfoss er 700 gámaeininga skip, 130 metra langur, og siglir undir færeyskum fána. Eimskip keypti skipið, sem … Halda áfram að lesa Selfoss og Felix á Skjálfanda
Felix við Bökugarðinn
IMO 9180877. Felix við Bökugarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hollenska flutningaskipið Felix kom til Húsavíkur í morgun og lagðist við Bökugarðinn. Felix, sem siglir eins og áður segir undir hollensku flaggi, kom með hráefnisfarm til PCC á Bakka. Skipið var smíðað árið 1999 og er heimahöfn þess í Groningen. Lengd skipsins er 111 metrar og … Halda áfram að lesa Felix við Bökugarðinn
Wilson Norfolk á Skjálfanda
IMO 9430997. Wilson Norfolk. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið Wilsion Norfolk hefur legið við festar á Skjálfanda síðustu daga en í dag var það komið að Bökugarðinum og uppskipun hafin. Skipið, sem kom með hráefnisfarm til PCC á Bakka, var smíðað árið 2011. Það siglir undir fána Möltu og er með heimahöfn í Valletta. IMO … Halda áfram að lesa Wilson Norfolk á Skjálfanda
Diezeborg við Bökugarðinn
IMO 9225586. Diezeborg ex Msc Marmara. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hollenska flutningaskipið Diezeborg kom til Húsavíkur í morgun með hráefnisfarm til PCC á Bakka. Skipið var smíðað árið 2000, það er 133 metra langt, 16 metra breitt og mælist 8,867 GT að stærð. Diezeborg siglir undir fána Hollands og hefur heimahöfn í Delfzijl. Með því … Halda áfram að lesa Diezeborg við Bökugarðinn
Stenheim við bryggju í Hafnarfirði
IMO 9261114. Stenheim. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Maggi Jóns tók þessa mynd á dögunum af olíuflutningaskipinu Stenheim við bryggju í Hafnarfirði. Stenheim, sem siglir undur flaggi Gíbraltar, var smíðað árið 2003 og mælist 11,935 GT að stærð. Lengd þess er 144 metrar og breiddin 23 metrar. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Stenheim við bryggju í Hafnarfirði
Star Osprey kom til Helguvíkur í gær
IMO 9315068. Star Osprey ex Gan Shield. Ljósmynd KEÓ 2019. Olíuskipið Star Osprey kom til Helguvíkur í gær og á þesari mynd er það í fylgd tveggja hafsögubáta frá Faxaflóahöfnum. Star Osprey er 183 metra langt, 32 metra breitt og mælist 30,068 GT að stærð. Skipið var smíðað árið 2007 og siglir undir flaggi Panama. … Halda áfram að lesa Star Osprey kom til Helguvíkur í gær









