Síðdegisól og brim við Skjálfanda

IMO 9350771. Fembria á Skjálfanda í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það var brim við Skjálfanda í dag og síðdegissólin skein þegar þessi mynd var tekin út á Bakkahöfða. Flutningaskip liggur þarna á flóanum en það kom með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka og kemur upp að þegar róast. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Síðdegisól og brim við Skjálfanda

Fembria á Skjálfanda

IMO 9350771. Fembria á Skjálfanda í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Flutningaskipið Fembria liggur framundan Húsavíkurhöfða þessa stundina en það er að koma með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Fembria siglir undir fána eyjunnar Mön á Írlandshafi og með heimahöfn í Douglas höfuðstað eyjunnar. Skipið er 117 metrar að lengd og breidd þess er 17 metrar. … Halda áfram að lesa Fembria á Skjálfanda

Rurik kom með farm fyrir PCC

IMO 9375795. Rurik ex Rorichmoor. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Rurik kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum en skipið er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Rurik siglir undir fána Antiqua og Barbadoseyja. Heimahöfn skipsins, sem smíðað var 2006, er Saint John’s. Skipið er 80 metra langt og 12 metra breitt. Það … Halda áfram að lesa Rurik kom með farm fyrir PCC

Wilson Nice kom með trjáboli

IMO 9430959. Wilson Nice. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Wilson Nice liggur nú við Bökugarðinn á Húsavík  þar sem uppskipun á trjáboli fyrir PCC á Bakka fer fram. Wilson Nice er 123 metra langt og 17 metra breitt, smíðað árið 2010. Það mælist 6,118 GT að stærð. Skipið, sem siglir undir fána Möltu og með heimahöfn … Halda áfram að lesa Wilson Nice kom með trjáboli

Rotsund kom til Hafnarfjarðar í gær

IMO 9333644. Rotsund ex Nordkinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Norska flutningaskipið Rotsund kom til Hafnarfjarðar í gær en það ku vera að flytja laxaseiði frá Aberdeen til Þingeyrar. Rotsund hét upphaflega Storfoss og var smíðaður fyrir Eimskip í Vaagland Båtbyggeri AS í Noregi. Skipið er 80 metra langt og 16 metra breitt og mælist 2,990 … Halda áfram að lesa Rotsund kom til Hafnarfjarðar í gær

Keilir kemur til Reykjavíkur

2946. Keilir. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessar myndir sem nú birtast voru teknar nú síðdegis þegar olíuskipið Keilir kom til Reykjavíkur og já, sólin skein. Keilir er í eigu Olíudreifingar og var míðaður hjá Akdeniz skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Hann kom til landsins í febrúarmánuði árið 2019. Keilir, sem leysti Laugarnes af hólmi í olíuflutningunum, siglir … Halda áfram að lesa Keilir kemur til Reykjavíkur

Ambassadeur kom með hráefni til PCC

IMO 9361328. Ambassadeur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Ambassadeur kom til Húsavíkur í gær með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Ambassadeur siglir undir hollensku flaggi með heimahöfn í Zwartsluis. Skipið var smíðað árið 2007 og er 110,78 metra langt og 14 metra breitt. Það mælist 3,990 GT að stærð. IMO 9361328. Ambassadeur. Ljósmyndir Hafþór … Halda áfram að lesa Ambassadeur kom með hráefni til PCC

Wilson Paldiski kom með salt

IMO 9373527. Wilson Paldiski ex Lauren C. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Wilson Paldiski lét úr höfn á Húsavík um kvöldmatarleytið en það kom í morgun með salt fyrir GPG Seafood. Skipið var smíðað árið 2007 og siglir undir norsku flaggi með heimahöfn í Bergen. Það er 90 metra langt, 15 metra breitt og mælist … Halda áfram að lesa Wilson Paldiski kom með salt

Wilson Newport í kvöldsólinni

IMO 9430985. Wilson Newport. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Wilson Newport liggur nú við Bökugarðinn en verið er að skipa upp trjádrumbum fyrir PCC á Bakka. Skipið var smíðað árið 2011 og siglir undir fána Möltu með heimahöfn í Walletta. Það er 123 metra langt og 17 metra breitt. Mælist 6,118 GT að stærð. Með … Halda áfram að lesa Wilson Newport í kvöldsólinni