Fram kom í dag

IMO 9370018. Fram. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipavertíðin hófst síðdegis í dag þegar norska leiðangursskipið Fram kom til Húsavíkur. Fram, sem einnig var fyrst skipa á ferðinni hér á síðasta vor, er gert út af fyrirtækinu Hurtigruten og er með heimahöfn í Tromsö.  Skipið er nefnt eftir skipi norsku landkönnuðanna Roald Amundsen og Fridtjof Nansen.  … Halda áfram að lesa Fram kom í dag

Hvalaskoðunarbáturinn Snorri

950. Snorri EA 317 ex Fríða RE 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Hvalaskoðunarbátinn Snorri EA 317 frá Dalvík kemur hér til hafnar á Húsavík sumarið 2009 en Norðursigling hafði hann þá á leigu. Báturinn var smíðaður 1964 í skipasmíðastöð KEA fyrir Hríseyinga og hét þá Farsæll II EA 130. Þeir voru tveir smíðaðir eftir þessari … Halda áfram að lesa Hvalaskoðunarbáturinn Snorri

Ný Cleopatra 36 til Båtsfjord í Noregi

Olavjenta TF-37-BD. Ljósmynd Trefjar 2023. Útgerðarfélagið 2Fisk AS í Båtsfjord í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Það eru feðgarnir Tor Øyvind og Øyvind Bolle sem standa að útgerðinni og verður Tor Øyvind skipstjóri á bátnum. Nýi báturinn heitir Olavjenta og er 10.99 metrar á lengd … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 36 til Båtsfjord í Noregi

Sævar kom og fór

2378. Hríseyjaferjan Sævar. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hríseyjarferjan Sævar kemur hér að og fer frá Árskógssandi á dögunum en hún er með heimahöfn í Hrísey. Sævar var smíðaður í Reykjavík árið 1999 en kom fyrst til Hríseyjar sumarið 2000. Sævar mælist 149 BT að stærð. 2378. Hrísejarferjan Sævar. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson 2023. Með því að … Halda áfram að lesa Sævar kom og fór

Seifur og Aidaluna

2955. Seifur - IMO 9334868. Aida Luna. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hér koma myndir sem teknar voru fyrir viku síðan á Akureyri og sýna hafnsögubátinn Seif og farþegaskipið Aidaluna. Aidaluna er 69,203 GT að stærð og var smíðað í Þýskalandi árið 2009 . Lengd skipsins er 251,9 metrar og það er 37,6 metrar breitt. Skipið … Halda áfram að lesa Seifur og Aidaluna

Marina á Skjálfanda

IMO 9438066. Marina. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Farþegaskipið Marina liggur hér framundan Húsavíkurhöfða og farþegar þess selfuttir í land á skipsbátum. Skipið, sem var smíðað í Genova á Ítalíu árið 2011, siglir undir fána Marshalleyja og heimahöfn þess er Majuro. Lengd þess er 239,3 metrar og breiddin 32,2 metrar. Það mælist 66,084 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Marina á Skjálfanda

World Explorer kom og fór

IMO 9835719. World Explorer. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Skemmtiferðaskipið World Explorer kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Norðurgarðinum. Skipið, sem siglir undir fána Portúgal með heimahöfn á Madeira, lét úr höfn nú síðdegis. Það var smíðað árið 2019 og mælist 9,923 GT að stærð. Lengd þess er 126 metrar og breiddin 19. IMO … Halda áfram að lesa World Explorer kom og fór

Scenic Eclipse II á Skjálfanda

IMO 9850460. Scenic Eclipse II. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Skemmtiferðaskipið Scenic Eclipse II lá fyrir utan Húsavík sl. laugardag og farþegar þess selfluttir í land á skipsbátum. Skipið er glænýtt, smíðað Rijeka í Króatíu og afhent í vor. Útgerðin er einnig í Rijeka, skipið siglir undir fána Króatíu með heimahöfn í Rijeka. Stærð þess er … Halda áfram að lesa Scenic Eclipse II á Skjálfanda

Le Boreal á Skjálfanda

IMO 9502506. Le Boreal. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Skemmtiferðaskipið Le Boreal siglir hér út Skjálfanda í gær eftir viðdvöl á Húsavík. Le Boreal er er í eigu franska skipafélagsins PONANT og var smíðað í Ancona á Ítalíu árið 2010. Það er 140 metrar að lengd, 18 metra breitt og mælist 10.944 GT að stærð. Le Boreal … Halda áfram að lesa Le Boreal á Skjálfanda

Maud kom í kvöld

IMO 9247728. Maud ex Midnatsol. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Norska skemmtiferðaskipið Maud kom til Húsavíkur í kvöld og lagðist að Bökugarðinum. Það er Hurtigruten sem gerir skipið út en það var smíðað í Noregi árið 2003. Heimahöfn þess er Tromsø. Skipið, sem bar áður nafnið Midnatsol er 16,151 GT að stærð, lengd þess er 135,75 … Halda áfram að lesa Maud kom í kvöld