NG Endurance kom í kvöld

IMO:9842554. National Geographic Endurance. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Farþegaskipið National Geographic Endurance kom til Húsavíkur í kvöld og lagðist að Bökugarði. NG Endurance er 124,35 metra langt og 23,6 metra breitt og mælist 12,786 GT að stærð. Eigandi NG Endurance er skipafélagið Lindblad Expeditions sem á einnig systurskipið National Geographic Resolution en þau voru smíðuð … Halda áfram að lesa NG Endurance kom í kvöld

Silver Spirit á Skjálfanda

IMO 9437866. Silver Spirit. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðskipið Silver Spirit kom inn á Skjálfanda í morgun og lagðist við akkeri framundan Húsavíkurhöfða og farþegar þess fluttir í land á léttbátum skipsins. Skipið, sem var smíðað í Ancona á Ítalíu árið 2008, er 211 metrar að lengd, 27 metra breitt og mælist 36.009 GT að … Halda áfram að lesa Silver Spirit á Skjálfanda

NG Explorer kom í kvöld

IMO 8019356. National Geographic Explorer siglir inn Skjálfanda í kvöld. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Farþegaskipið National Geographic Explorer kom til Húsavíkur í kvöldsólinni sem á vel við þar sem fyrsta nafn skipsins var Midnatsol. Skipið var smíðað árið 1982 í Ulstein Verft AS í Noregi og bar nafnið Midnatsol til ársins 2003 er það varð Midnatsol … Halda áfram að lesa NG Explorer kom í kvöld

Azamara Quest á Skjálfanda

 IMO 9210218. Azamara Quest ex Blue Moon. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Farþegaskipið Azamara Quest liggur við akkeri, eða ankeri eins og sumir segja, framundan Húsavíkurhöfða í dag og farþegar þess fluttir í land á léttbátum skipsins. Azamara Quest var smíða í Frakklandi árið 2000 og hét fyrstu þrjú árin R Seven og næstu þrjú árin … Halda áfram að lesa Azamara Quest á Skjálfanda

Scenic Eclipse

 IMO 9797371. Scenic Eclipse. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið Scenic Eclipse lét úr höfn á Húavík nú undir kveld en skipið kom til hafnar rétt fyrir hádegi í gær. Skipið var smíðað hjá Uljanik shipyard í Pula í Króatíu árið 2019. Útgerðin er í Rijeka í Króatíu en skipið siglir undir fána Bahamaseyja með heimahöfn … Halda áfram að lesa Scenic Eclipse

National Geographic Resolution

IMO: 9880685. National Geographic Resolution. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið National Geographic Resolution kom til Húsavíkur nú síðdegis og lagðist að Norðurgarði. Skipið var smíðað í Ulstein Verft í Ulsteinvik, Noregi árið 2021. NG Resolution er 124,43 metra langt og 21 metra breitt. Það mælist 12,726 GT að stærð, tekur 126 farþega í 69 káetum. Áhöfn þess telur … Halda áfram að lesa National Geographic Resolution

Norwegian Star á Skjálfanda

IMO 9195157. Norwegian Star á Skjálfanda í morgun. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið Norwegian Star kom inn á Skjálfandaflóa í morgun og lagðist við festar framundan Húsavíkurhöfn um stund. Norwegian Star er með stærstu skipum sem koma til Húsavíkur í sumar, mælist 91,740 GT að stærð. Lengd þess er 294,15 metrar og breiddin er 32,8 … Halda áfram að lesa Norwegian Star á Skjálfanda

Silver Endeavour á Skjálfanda

IMO 9821873. Silver Endeavour ex Crystal Endeavor.. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið Silver Endeavour kom í morgun inn á Skjálfanda og lagðist við stjóra fram undan Húsavíkurhöfðanum. Silver Endeavor er 168 metra langt og 28 metra breitt og smíðaár er 2021. Það mælist 20.449 GT að stærð. Skipið hét fyrsta árið Crystal Endeavour og kom … Halda áfram að lesa Silver Endeavour á Skjálfanda

Silver Wind á Húsavík

IMO 8903935. Silver Wind. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið Silver Wind kom til Húsavíkur að morgni þjóðhátíðardags og lagðist að Bökugarðinum. Skipið, sem var smíðað á Ítalíu árið 1995, er 162 metrar að lengd, 26 metra breitt og mælist 17.235 GT að stærð. Það siglir undir fána Bahama með heimahöfn í Nassau. IMO 8903935. Silver … Halda áfram að lesa Silver Wind á Húsavík

Sylvia Earle

IMO 9872327. Sylvia Earle. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið Sylvia Earle kom til Húsavíkur í dag eftir siglingu frá Akureyri. Sylvia Earle var smíðað árið 2022 og er af Ulstein X-BOW gerð. Skipið er smíðað til siglinga við Suðurskautið sem og á norðlægum slóðum. Lengd þess er 104 metrar og breidd 18 metrar og það mælist 8,076 … Halda áfram að lesa Sylvia Earle