284. Anna HF 39 ex Anna ÓF 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Anna HF 39 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn um árið en báturinn var með heimahöfn í Hafnarfirði árin 1984-1993. Upphaflega Anna ÓF 7, smíðuð fyrir Ólafsfirðinga í Slippstöðinni á Akureyri árið 1961. Báturinn, sem var 20 brl. að stærð, var seldur til Hafnarfjarðar … Halda áfram að lesa Anna HF 39
Flokkur: Bátar
Saxhamar SH 50
1074. Saxhamar SH 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Saxhamar SH 50 var smíðaður í Skipasmíðastöðinni Stálvík fyrir Útnes hf. á Rifi og afhentur árið 1969. Báturinn var 110 brl að stærð en eftir lengingu um 2,5 metra árið 1972 mældist hann 128 brl. að stærð. Saxhamar var yfirbyggður um 1980 og ný brú sett á hann … Halda áfram að lesa Saxhamar SH 50
Gunnjón GK 506
1625. Gunnjón GK 506. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Gunnjón GK 506 liggur hér í höfn í Njarðvík um árið en hann var einmitt afhentur frá Skipasmíðastöð Njarðvíkur í sumarbyrjun árið 1982. Í Morgunblaðinu 30. maí 1982 sagði m.a svo frá: Gunnjón GK 506 nefnist nýtt 271 smálestar liskiskip sem Skipasmíðastöð Njarðvíkur afhenti i gærkvöldi, en eigendur skipsins eru Gaukstaðir hf. i Garði. Gunnjón … Halda áfram að lesa Gunnjón GK 506
Kristín ÁR 101
1434. Kristín ÁR 101 ex Tryggvi Jónsson EA 26. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kristín ÁR 101 var gerð út frá Þorlákshöfn um sjö ára skeið eða frá 1982 til 1989 en þá var hún seld til Hólmavíkur. Úr 1. tbl. Ægis 1989: Báturinn er með smíðanúmer fimm frá Vélsmiðjunni Stál Á Seyðisfirði. Hann var smíðaður árið 1975 og afhentur í júlí sama … Halda áfram að lesa Kristín ÁR 101
Leifur á ralli
1434. Leifur EA 888 ex Þorleifur EA 88. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Leifur EA 888 kom til hafnar á Húsavík fyrir stundi eftir að hafa lagt netatrossur í Skjálfanda en báturinn sinnir norðursvæði í netaralli Hafrannsóknastofnunar. Eins og glöggir menn sjá er þetta gamli Þorleifur EA 88 en þegar útgerðin keypti annan bát í haust … Halda áfram að lesa Leifur á ralli
Faxavík GK 727
1354. Faxavík GK 727 ex Fiskanes NS 37. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Faxavík GK 727 hét upphaflega Múli ÓF 5 og var smíðaður á Akureyri árið 1974. Báturinn var smíðaður á Bátaverkstæði Gunnlauga og Trausta og mældist 36 brl. að stærð. Um bátinn má lesa nánar hér en hann bar nafnið Faxavík árin 1981 til 1988. … Halda áfram að lesa Faxavík GK 727
Þórsnes SH 109
2936. Þórsnes SH 109 ex Veidar 1. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2024. Tryggvi Sigurðsson tók þessa glæsilegu mynd í vikunni þegar Þórsnes SH 109 kom til hafnar í Vestmannaeyjum. Þórsnesið var keypt frá Noregi og kom til heimhafnar í Stykkishólmi sumarið 2017. Í Noregi bar skipiðð nafnið Veidar 1 M-76-G og var með heimahöfn í Álasundi. … Halda áfram að lesa Þórsnes SH 109
Kristbjörg og Skálaberg
1420. Kristbjörg ÞH 44 - 1053. Skálaberg ÞH 244 ex Kristbjörg II ÞH 244. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd hefði sjálfsagt átt að fara í ruslið en fór ekki og því get ég birt hana hér. Mig minnir að ég hafi tekið hana haustið 1983 á mína fyrstu myndavél sem tók 35 mm filmur. Þarna … Halda áfram að lesa Kristbjörg og Skálaberg
Blómfríður SH 422
1244. Blómfríður SH 422 ex Gunnar Bjarnason SH 422. Ljósmynd Alfons Finnsson. Blómfríður SH 422 hét upphaflega Harpa GK 111 og var smíðuð árið 1972 fyrir Gullvík hf. í Grindavík. Smíðin fór fram hjá Skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts hf. á Akranesi. Harpa, sem var 103 brl. að stærð, var seld til Grundarfjarðar árið 1975 þar … Halda áfram að lesa Blómfríður SH 422
Saxhamar
1028. Saxhamar SH 50 ex Sjöfn EA 142. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson 2024. Saxhamar SH 50 frá Rifi kom til Reykjavíkur í gær og tók Jón Páll Ásgeirsson þessa mynd af honum þá. Útnes ehf. á og gerir bátinn út sem hét upphaflega Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 og var smíðaður 1967 fyrir Þorbjörn hf. í … Halda áfram að lesa Saxhamar









