Bátar við bryggju í Grindavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd var tekin í Grindavík um árið og sýnir þrjá báta við bryggju þar í bæ. Fremstur á myndinni er Fengsæll GK 262 sem áður hét m.a Ingólfur GK 125 og sjá má mynd af hér. Hann liggur utan á Hrímni SH 35 frá Stykkishólmi sem … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju í Grindavík
Flokkur: Bátar
Bátar við bryggju á Akureyri
Bátar við bryggju á Akureyri. jósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta mynd sem tekin var á Akureyri um miðjan tíunda áratug síðustu aldar. Þarna eru bátar úr Hrísey í aðalhlutverki. Sólfellið og gamla Eyborg hérna nær með Svan SH 335 utan á sér og fjær er nýja Eyborgin sem kom í flotann í aprílmánuði … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju á Akureyri
Leifur seldur
1434. Leifur EA 888 ex Þorleifur EA 88. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Fram kemur á vef Fiskifrétta í dag að Leifur EA 888 hafi verði seldur vestur á Snæfellsnes. Leifur EA var á Netaralli fyrir Hafró og báturinn var áfram í verkefnum fyrir Hafró með prófanir á hvalafælum. Að því loknu verður hann afhentur útgerðinni … Halda áfram að lesa Leifur seldur
Þá er Tindur allur
847. Tindur SH 179 ex Friðrik Bergmann SH 240. Ljósmynd Alfons Finnsson. Þá er Tindur SH 179 allur eins og sjá má myndinni sem Fonsi sendi mér í morgun. Eftir að Tindur SH 179 var afskráður síðla árs 1994 var hann tekinn á land við Ólafsvík þar sem hann hefur staðið uppi þar til nú. … Halda áfram að lesa Þá er Tindur allur
Jóhanna Margrét SI 11
163. Jóhanna Margrét SI 11 ex Jóhanna Margrét HU 130. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jóhanna Margrét SI 11 hét upphaflega Vinur ÍS 102 og var smíðaður fyrir Hnífsdælinga í Þýskalandi árið 1960. 101 brl. að stærð í upphafi en síðar mældur niður í 88 brl. en það var gert árið 1974. Vinur fékk nafnið Páll Pálsson … Halda áfram að lesa Jóhanna Margrét SI 11
Albert Ólafsson KE 39
256. Albert Ólafsson KE 39 ex Ólafur Friðbertsson ÍS 34. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Albert Ólafsson KE 39 liggur hér í Keflavíkurhöfn um árið en upphaflega hét báturinn Ólafur Friðbertsson ÍS 34 frá Súgandafirði, smíðaður Flekkefjord í Noregi 1964. Báturinn var keyptur til Keflavíkur árið 1982 þar sem hann fékk nafnið Albert Ólafsson KE 39. Albert Ólafsson … Halda áfram að lesa Albert Ólafsson KE 39
Kristbjörg ÞH 44
1009. Kristbjörg ÞH 44 ex Kristbjörg II ÞH 244. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rækjubáturinn Kristbjörg ÞH 44 sigli hér inn Skjálfanda um árið áleið sinni til hafnar á Húsavík. Kristbjörg ÞH 44 hét upphaflega Sóley ÍS 225 frá Flateyri og kom ný til heimahafnar í lok maímánaðar 1966. Smíðuð í Risør í Noregi. Sóley ÍS 225 hét … Halda áfram að lesa Kristbjörg ÞH 44
Sigurvon ST 54
922. Sigurvon ST 54 ex Sigurbára VE 249. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sigurvon ST 54 hét upphaflega Þorlákur ÍS 15 og var smíðaður í Danmörku árið 1957. Eigandi Græðir hf. í Bolungarvík. Báturinn, sem var 64 brl. að stærð, var seldur á Eyrarbakka árið 1965 þar sem hann fékk nafnið Þorlákur helgi ÁR 11. Frá Eyrarbakka … Halda áfram að lesa Sigurvon ST 54
Hringur GK 18
1434. Hringur GK 18 ex Ásdís ST 37. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hringur GK 18 kemur hér að landi í Hafnarfirði um árið og eins og glöggir menn sjá er þetta áður en hann fékk bláa litinn. Hringur heitir Leifur EA 888 í dag og hér má lesa sögu bátsins sem upphaflega hét Hildur Stefánsdóttir ÞH … Halda áfram að lesa Hringur GK 18
Álaborg og Bakkavík
133. Álaborg ÁR 25 - 1158. Bakkavík ÁR 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1982. Eyrarbakkabátarnir Álaborg ÁR 25 og Bakkavík ÁR 100 eru hér í Þorlákshöfn á vetrarvertíðinni árið 1982. Um Bakkavík má lesa hér og Álaborg hér. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the … Halda áfram að lesa Álaborg og Bakkavík









