2444. Sturla GK 12 ex Smáey VE 444. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Togbáturinn Sturla GK 12 frá Grindavík kom inn til löndunar í Hafnarfirði í morgun. Þorbjörn hf. keypti skipið til Grindavíkur frá Vestmannaeyjum árið 2020. Það var smíða í Póllandi árið 2007 fyrir Berg-Huginn ehf. og fékk nafnið Vestmannaey VE 444 en Eftir að ný … Halda áfram að lesa Sturla kom til löndunar í morgun
Flokkur: Bátar
Pálína Þórunn GK 49
2449. Pálína Þórunn GK 49 ex Steinunn SF 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Togskipið Pálína Þórunn GK kom að landi í Sandgerði í morgun og ekki annað að sjá en að vel hafi fiskast. Pálína Þórunn GK 49 hét áður Steinunn SF 10 en Nesfiskur hf. keypti hana af Skinney-Þinganesi hf. árið 2019. Pálína Þórunn … Halda áfram að lesa Pálína Þórunn GK 49
Erling KE 140
2986. Erling KE 140 ex Mars RE 270. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Netabáturinn Erling KE 140 siglir hér í dag inn Stakksfjörðinn og til hafnar í Keflavík. Saltver ehf. á Erling og gerir út en fyrirtækið keypti bátinn í lok árs 2022 af Útgerðarfélagi Reykjavíkur. Erling er 34 metrar að lengd, breiddin er 9 metrar … Halda áfram að lesa Erling KE 140
Guðmundur Kristinn SU 404
1000. Guðmundur Kristinn SU 404 ex Flosi ÍS 15. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Guðmundur Kristinn SU 404 var gerður út frá Fáskrúðsfirði um árabil en eigandi hans var Pólarsíld hf. þar í bæ. Guðmundur Kristinn SU 404 hét áður Flosi ÍS 15 en upphaflega hét hann Seley SU 10 og var frá Eskifirði. Smíðaður í Flekkefjørd … Halda áfram að lesa Guðmundur Kristinn SU 404
Seifur fór með Treville í togi til Akureyrar
IMO 9815331. Treville. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hafnsögubáturinn Seifur frá Akureyri kom til Húsavíkur snemma í morgun þeirra erinda að sækja hollenska flutningaskipið Treville. Treville hefur legið við Norðurgarðinn í Húsavíkurhöfn í tæpar tvær vikur eða allt frá því varðskipið Freyja kom með það vélarvana í togi til Húsavíkur að kveldi 16. apríl sl. Frekari … Halda áfram að lesa Seifur fór með Treville í togi til Akureyrar
Björg VE 5
338. Björg VE 5 ex Skrúður SU 410. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Björg VE 5 var smíðuð í Svíþjóð árið 1943 og var 63 brl. að stærð en ytra bar báturinn nafnið Santos. Báturinn var keyptur til Íslands árið 1946 og fékk nafnið Skrúður SU 410 og heimahöfn Eskifjörður. Kaupandi Jóhann Hansen sem átti bátinn fjögur … Halda áfram að lesa Björg VE 5
Arnar ÁR 55
1056. Arnar ÁR 55 ex Skálafell ÁR 155. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Arnar ÁR 55 kom til löndunar á Húsavík að morgni 1. júní árið 2012 og þá var þessi mynd tekin. Arnar hét upphaflega Ísleifur VE 63 og var smíðaður í Noregi árið 1967. Hér má lesa nánar um bátinn sem fór í pottinn … Halda áfram að lesa Arnar ÁR 55
Hafberg GK 17
1252. Hafberg GK 17 ex Bjarni Svein SH 107. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Hafberg GK 17 kemur hér að landi í Grindavík í marsmánuði árið 2005 en báturinn var gerður út af Hælsvík ehf.. Upphaflega hét báturinn Orion RE 44 og var smíðaður í Stálvík í Garðabæ árið 1971. Orion, sem var 29 brl. að … Halda áfram að lesa Hafberg GK 17
Ísfélagið kaupir Pathway
IMO 9763095. Pathway PD 165. Ljósmynd Karstensens Skibsvært. Frá því var greint í vikunni að Ísfélagið hefði fest kaup á skoska uppsjávarskipinu Pathway. Seljandi er Lunar Fishing Company Limited en Pathway var smíðað hjá Karstensen skipasmíðastöðinni í Skagen árið 2017. Skipið er 78 metra langt og 15,5 metra breitt og eru kaupin liður í endurnýjun … Halda áfram að lesa Ísfélagið kaupir Pathway
Bátar við bryggju í Grindavík
Bátar við bryggju í Grindavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd var tekin í Grindavík um árið og sýnir þrjá báta við bryggju þar í bæ. Fremstur á myndinni er Fengsæll GK 262 sem áður hét m.a Ingólfur GK 125 og sjá má mynd af hér. Hann liggur utan á Hrímni SH 35 frá Stykkishólmi sem … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju í Grindavík









