Tjaldur og Rifsnes á Rifi

2158. Tjaldur SH 270 - 2847. Rifsnes SH 44. Ljósmynd Sigurður Friðfinnsson 2024. Sigurður Friðfinnsson tók þessa myndir í gærmorgun af línuskipunum Tjaldi SH 270 og Rifsnesi SH 44 þar sem þau liggja í blankalogni við bryggju á Rifi. Um Tjaldinn má lesa hér en Hraðfrystihús Hellisands keypti Rifsnesið til landsins árið 2013. Það hét … Halda áfram að lesa Tjaldur og Rifsnes á Rifi

Sigurþór GK 43

1427. Sigurþór GK 43 ex Árni ÓF 44. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurþór GK 43 hét upphaflega Árni ÓF 44 og var smíðaður 1975 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd. Báturinn, sem var rétt tæplega 30 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Árna sf. á Ólafsfirði en árið 1983 er hann seldur til Grindavíkur. Þar fær … Halda áfram að lesa Sigurþór GK 43

Tjaldanes GK 525

124. Tjaldanes GK 525 ex Gaukur GK 660. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Netabáturinn Tjaldanes GK 525 kemur hér til hafnar í Njarðvík sumarið 2004. Báturinn var smíðaður árið 1962 í Molde í Noregi fyrir Gauksstaði h/f í Garði og hét Jón Finnsson GK 506. Hann hét síðar Friðþjófur SU 103, Verðandi KÓ 40 og Verðandi … Halda áfram að lesa Tjaldanes GK 525

Ocean Albatros

IMO 9880661. Ocean Albatros. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024 Skemmtiferðaskipið Ocean Albatros kom til Húsavíkur snemma í morgun og stoppaði til hádegis. Skipið var smíðað í Kína og afhent í apríl á síðasta ári. Lengd þess er 104,4 metrar, breiddin 18,4 metrar og það mælist 8,181 GT að stærð. Skipið siglir undir fána Portúgal með heimahöfn … Halda áfram að lesa Ocean Albatros

Hagland Progress í Grindavík

IMO 9936343. Hagland Progress. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024. Norska flutningaskipið Hagland Progress kom til Grindavíkur sl. sunnudag með salt á vegum Saltkaupa til Vísis hf. Skipið kom með saltið frá Álasundi í Noregi sem er stór umskipunarhöfn fyrir salt. Hagland Progress var smíðað 2023 hjá Royal Bodewes í Hollandi og er 85 metrar að … Halda áfram að lesa Hagland Progress í Grindavík

Misje Vita

IMO 9927421. Misje Vita. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Misje Vita kom til Húsavíkur í gærkveldi eftir siglingu frá Hollandi. Skipið er með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Misje Vita var smíðað á Sri Lanka árið 2022 og siglir undir norsku flaggi. Heimahöfn skipsins er Bergen. Skipið er 89,5 metra langt, breidd þess er … Halda áfram að lesa Misje Vita

Hafsúla KE 46

1470. Hafsúla KE 46 ex Haförn ÍS 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hafsúla KE 46 hét upphaflega Hafsúlan SH 7, smíðuð fyrir Halldór S. Sveinsson í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. í Hafnarfirði árið 1976. Afhent í janúar 1977, 37 brl. að stærð búinn 365 hestafla Caterpillar aðalvél. Heimahöfn Rif á Snæfellsnesi. Í ágústmánuði 1977 var báturinn skráður … Halda áfram að lesa Hafsúla KE 46