Hulda Björnsdóttir GK 11 afhent í dag

3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Þorbjörn hf. 2024. Það var stór dagur í skipasmíðastöðinni í Gijón á Spáni í dag þegar Hulda Björnsdóttir GK 11 var afhent Þorbirni hf. að viðstöddum fulltrúum Þorbjarnar og skipasmíðastöðvarinnar Astilleros Armon. Frá þessu segir á Fésbókarsíðu fyrirtækisins sem veitti góðfúslegt leyfi til að myndbirtingar hér. Þar segir jafnframt: … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11 afhent í dag

Fiskibátar í Hondaribbia

Fiskibátar í höfninni í Hondaribbia sumarið 2014. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta nokkra fiskibáta í höfninni í Hondaribbia á Spáni en bærinn er við mynni Bidasoa árinnar, í Gipuzkoa, í Baskalandi á Spáni. Myndin var tekin sumarið 2014 er við dvöldum í Hendaye handan Irun árinnar, s.s í Frakklandi og gerðum okkur nokkrar … Halda áfram að lesa Fiskibátar í Hondaribbia

Sigurfari VE 138

1213. Sigurfari VE 138 ex Náttfari RE 75. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sigurfari VE 138 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum um árið en hann hét upphaflega Heimaey VE 1. Báturinn var smíðaður árið 1972 í Slippstöðinn á Akureyri fyrir Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hf. og Sigurð Georgsson skipstjóra. Báturinn, sem upphaflega var 105 brl. að stærð, var … Halda áfram að lesa Sigurfari VE 138

Hólmsteinn GK 20

7789. Hólmsteinn GK 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Strandveiðibáturinn Hólmsteinn GK 20 kemur hér að landi í Sandgerði þann 2. maí sl. á fyrsta degi strandveiðatímabilsins 2024. Hólmsteinn, sem var smíðaður árið 1995, er gerður út af Austurlyngi ehf. með heimahöfn í Garði. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Hólmsteinn GK 20

Sigurbjörg ÁR 67 landaði í Eyjum

3018. Sigurbjörg ÁR 67. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2024. Sigurbjörg ÁR 67, nýjasta skip Ísfélagsins, landaði í fyrsta skiptið í Vestmannaeyjum í vikunni og tók Tryggvi Sigurðsson þessa mynd þegar hún hélt aftur til veiða í gær. Sigurbjörg var smíðuð hjá Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul í Tyrklandi og kom til landsins um miðjan júlímánuð. Skipið er … Halda áfram að lesa Sigurbjörg ÁR 67 landaði í Eyjum

Síldarvinnslan kaupir Þóri SF 77 sem fær nafnið Birtingur

2731. Þórir SF 77. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2019. Síldarvinnslan hf. hefur keypt Þóri SF 77 af Skinney-Þinganesi hf. á Hornafirði og mun hann fá nafnið Birtingur NK 119. Efirfarandi má lesa um kaupin á heimasíðu fyrirtækisins: Síldarvinnslan hefur fest kaup á ferskfisktogaranum Þóri af Skinney – Þinganesi á Hornafirði. Togarinn er einnig búinn til … Halda áfram að lesa Síldarvinnslan kaupir Þóri SF 77 sem fær nafnið Birtingur

María Júlía komin til Húsavíkur

151. María Júlía í Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hjálmar Bogi 2024. Í gær lagði Örkin upp frá Akureyri með Maríu Júlíu BA 36, hið gamla  björgunarskip Vestfirðinga, áleiðis til Húsavíkur og komu bátarnir þangað í gærkveldi. María Júlía fer í slipp á Húsavík til viðgerða en það hefur legið undir skemmdum við Ísafjarðarhöfn árum saman þrátt fyrir … Halda áfram að lesa María Júlía komin til Húsavíkur