Ögmundur RE 94

212. Ögmundur RE 94 ex Skagaröst KE 70. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ögmundur RE 94 hét upphaflega Sæþór ÓF 5 og var smíðaður árið 1960 í Risör í Noregi. Báturinn var smíðaður fyrir Hraðfrystihús Ólafsfjarðar h.fá Ólafsfirði en hér má lesa nánar um bátinn. Nafnið Ögmundur fékk báturinn vorið 1990 þegar Ingimundur hf. í Reykjavík keypti … Halda áfram að lesa Ögmundur RE 94

Kambaröst SU 200

1497. Kambaröst SU 200. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Kambaröst SU 200 var smíðuð í Noregi árið 1977 og var 487 brl. að stærð. Eigandi var Hraðfrystihús Stöðvarfjarðar hf.á Stöðvarfirði. Kambaröstin var seld til Namibíu árið 2002, þá í eigu Samherja eftir nokkrar sameiningar fyritækja. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Kambaröst SU 200

Þinganes SF 25.

2040. Þinganes SF 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Þinganes SF 25 frá Hornafirði kemur hér til hafnar á Húsavík í septembermánuði árið 2012. Þinganes er eitt fjögurra systurskipa sem smíðuð voru á sínum tíma fyrir Íslendinga hjá Carnave Eir Navais Sa smíðastöðinni í Aveiro í Portúgal. Árið 2021 seldi Skinney – Þinganes bátinn, sem þá … Halda áfram að lesa Þinganes SF 25.

Skagfirðingur SK 4

1265. Skagfirðingur SK 4 ex Vigri RE 71. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Skagfirðingur SK 4 hét upphaflega Vigri RE 71 og var smíðaður í Póllandi fyrir Ögurvík hf. Reykjavík. Vigri kom í fyrsta skipti til heimahafnar í Reykjavík þann 24. október árið 1972 og systurskipið Ögri RE 72 kom þann 13. desember sama ár. Vigri var … Halda áfram að lesa Skagfirðingur SK 4

Brimnes RE 27

2770. Brimnes RE 27 ex Vesttind. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2015. Brimnes RE 27 hét upphaflega Vesttind og var smíðað hjá Solstrand AS í Tomrefjørd í Noregi árið 2003. Brim hf. keypti togarann, sem er 70,1 metrar að lengd, 14,6 metrar á breidd og mælist 2,880 BT að stærð, frá Noregi árið 2007. Brimnes var selt til Rússlands árið 2018. Með því að … Halda áfram að lesa Brimnes RE 27