2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar 2025. Jóhanna Gísladóttir kom til löndunar í Grindavík snemma í gærmorgun og var aflinn um 240 kör sem gerir um það bil 76 tonn. Uppistaða aflans var þorskur, ýsa og steinbítur. Vísir keypti togarann frá Vestmannaeyjum árið 2021 þar sem hann bar nafnið … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir landaði í Grindavík í gær
Author: Hafþór Hreiðarsson
Ný Cleopatra 33 afhent til Englands
Maverick III E 200. Ljósmynd Trefjar 2025. Trefjar afhentu á dögunum nýjan Cleopatra 33 bát, Maverick III, til Lyme Regis í Dorset á suðurströnd Englands. Eigandi og skipstjóri bátsins er Brett Newton frá Beer og að hans sögn verður báturinn gerður út frá Lyme Regis allt árið um kring. Aðalvél bátsins er FPT C90 tengd … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 33 afhent til Englands
Vatneyri BA 238
78. Vatneyri BA 238 ex Erlingur GK 212. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Vatneyri BA 238 liggur hér við bryggju í Reykjavík um árið en upphaflega er þetta tappatogarinn Hafþór NK 76. Hér má lesa nánar um skipið sem frá árinu 2000 bar nafnið Ísborg ÍS 250. Ísborg fór í brotajárn árið 2019. Með því að smella … Halda áfram að lesa Vatneyri BA 238
Moby Dick byrjaður að sigla
1453. Moby Dick ex Gerpir NK 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hvalaskoðunarbáturinn Moby Dick kemur hér að landi á Húsavík í gær en vertíðin byrjaði hjá Adda skólabróður og fjölskyldu í gær. Gentle Giants hóf einnig sína vertíð í gær en því miður rétt missti ég af Sylvíu þegar hún kom til hafnar eftir fyrstu … Halda áfram að lesa Moby Dick byrjaður að sigla
Guðbjörg Ósk SH 251
1354. Guðbjörg Ósk SH 251 ex Guðbjörg Ósk VE 151. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001 Guðbjörg Ósk SH 251 lætur hér úr höfn í Sandgerði um sumarið 2001 en báturinn var með heimahöfn í Ólafsvík. Báturinn, sem er í dag skonnortan Hildur frá Húsavík, hét upphaflega Múli ÓF 5 og var smíðaður á Akureyri árið 1974.Lesa … Halda áfram að lesa Guðbjörg Ósk SH 251
Vestmannaey á útleið frá Grindavík
2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir sl. sunnudag þegar Vestmannaey VE 54 hélt til veiða að lokinni löndun í Grindavík. Vestmannaey er í eigu Bergs- Hugins hf dótturfélags Síldarvinnslunnar og var smíðuð í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Noregi. 2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2025. … Halda áfram að lesa Vestmannaey á útleið frá Grindavík
Sigurbjörn VE 329
1051. Sigurbjörn VE 329 ex Aldan SH 119. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sigurbjörn VE 329 var smíðaður sem opinn vélbátur í Reykjavík árið 1935 og endurbyggður árið 1946. Hilmar Sigurbjörnsson er skráður eigandi 1964 og þá fékk báturinn þetta nafn, Sigurbjörn VE 329. Báturinn, sem var 7 brl. að stærð, var dekkaður árið 1966. Árið 200 … Halda áfram að lesa Sigurbjörn VE 329
Árni í Teigi GK 1
2390. Árni í Teigi GK . Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Árni í Teigi GK 1 kemur hér að landi í Grindavík um árið en hann var af gerðinni Cleopatra 38. Báturinn var smíðaður fyrir Reyni Jóhannsson í Grindavík í Trefjum í Hafnarfirði árið 2000. Árið 2003 skráður eigandi Víkurberg ehf. í Grindavík. Árið 2005 fékk báturinn … Halda áfram að lesa Árni í Teigi GK 1
Gísli Súrsson GK 8 kemur að
2878. Gísli Súrsson GK 8. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Á þessum myndum Jóns Steinars frá því í gær gefur að líta línubátinn Gísla Súrsson GK 8 koma að landi í Grindavík. Gísli Súrsson er af gerðinni Cleopatra 50 frá Trefjum líkt og Auður Vésteins SU 88 og Vésteinn GK 88 en bátarnir eru gerðir … Halda áfram að lesa Gísli Súrsson GK 8 kemur að
Þorsteinn KE 10
310. Þorsteinn KE 10 ex Oddrún RE 126. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Þorsteinn KE 10 sem upphaflega hét Breiðfirðingur SH 101 og var smíðaður í Danmörku árið 1955. Breiðfirðingur var 28 brl. að stærð búinn 140 hestafla Hundestad díeselvél. Hann var smíðaður fyrir Arnar Sigurðsson, Kristján Guðmundsson og Rögnvald Ólafsson á Hellisandi. … Halda áfram að lesa Þorsteinn KE 10









