Guðfinnur KE 19

1371. Guðfinnur KE 19 ex Sturlaugur ÁR 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Guðfinnur KE 19 hét upphaflega Vingþór NS 341 og var smíðaður árið 1974 á Seyðisfirði af Vélsmiðjunni Stál. Vingþór var gerður út frá Seyðisfirði til ársins 1980 en þá var hann seldur til Þorlákshafnar þar sem hann fékk nafnið Sturlaugur ÁR 7. Árið 1982 … Halda áfram að lesa Guðfinnur KE 19

Björg Jónsdóttir ÞH 321

263. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Gandí VE 171. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Björg Jónsdóttir ÞH 321 er hér í Húsavíkurhöfn um árið, sennilega 1986, en hún var keypt hingað í janúar 1985. Báturinn hét upphaflega Þorbjörn II GK 541 frá Grindavík og var smíðaður árið 1964 fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða h/f í Grindavík. Smíðin fór fram … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321

Hafborgin dregur netin á Eyjafirði

2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar náði þesum myndum af Hafborginni EA 152 þar sem hún var að draga netin á Eyjafirði. Ljósmyndarinn skrifar svo síðu sinni Báta og bryggjurölt: Hafborg var við netaveiðar inni á Eyjafirði í dag en hún stundar þessa dagana vísindaveiðar á vegum Hafró eða svokallað … Halda áfram að lesa Hafborgin dregur netin á Eyjafirði

Kristján HF 100 á landleið

2961. Kristján HF 100. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Hér er Kristján HF 100 á landleið til Grindavíkur í gærkvöldi baðaður geislum kvöldsólarinnar en hann var að veiðum rétt austan við Grindavík. Kristján HF 100 er yfirbyggður Cleopatra 46B beitningavélarbátur frá Trefjum sem var afhentur sumarið 2018. Báturinn er 14 metrar að lengd og mælist 30 brúttótonn. … Halda áfram að lesa Kristján HF 100 á landleið

Olíuskipið Keilir

2946. Keilir. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Olíuskipið Keilir er hér á ferðinni um Sundin á öðrum degi páska en hann er í eigu Olíudreifingar. Keilir var míðaður hjá Akdeniz skipasmíðastöðinni í Tyrklandi og kom til landsins í febrúarmánuði árið 2019. Keilir, sem leysti Laugarnes af hólmi í olíuflutningunum, siglir undir íslensku flaggi og er 496 … Halda áfram að lesa Olíuskipið Keilir