Skálaberg ÞH 244

Skálaberg ÞH 244 ex Sigurður Þorkelsson ÍS 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Skálaberg ÞH 244 kemur hér að bryggju um árið en Aðalgeir og Egil Olgeirssynir keyptu bátinn frá Ísafirði haustið 1985 og gerðu út til ársins 1990.

Báturinn var smíðaður árið 1957 í Danmörku fyrir Sigvalda Þorleifsson h/f í Ólafsfirði og hét Þorleifur Rögnvaldsson ÓF 36. 

Hann er seldur 1967 til Grindavíkur þar sem hann fær nafnið Ásmundur GK 30. 1967 er hann seldur Græði h/f í Bolungarvík og nefndur Flosi ÍS 15. 1971 er báturinn seldur Sólbergi h/f í Keflavík og fékk nafnið Sólrún KE 61. 1972 kaupir Valdimar h/f í Keflavík bátinn sem fær nafnið Símon Gíslason KE 155. 

Skipasmíðastöð Njarðvíkur h/f kaupir bátinn 1974 og er hann þar til ársins 1985 að hann er seldur til Ísafjarðar. Kaupandinn er Helgi Geirmundsson sem nefnir bátinn Sigurð Þorkelsson ÍS 200. Þegar hér var komið við sögu er búið að endurbyggja bátinnn, hann orðinn frambyggður og alls ólíkur þeim báti sem hann var í upphafi.

Þannig var það nú en frá Húsavík fór báturinn austur á Neskaupstað þar sem hann fékk nafnið Hlífar Pétur NK 15 sem hann bar í um þrjú ár.

Eftir það bar hann nöfnin Kolbrún ÍS 74, Freyja GK 364, Röstin GK 120, Orri ÍS 180, HF 180, GK 63 og aftur ÍS 180.

Orri ÍS 180 var einn þeirra báta sem sukku í Flateyrarhöfn eftir snjóflóð þann 14 janúar árið 2020 en náðist upp stórskemmdur.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd