Markús KE 177

1426. Markús KE 177 ex Markús SH 271. Ljósmynd Vigfús Markússon.

Markús KE 177 hét upphaflega Hvanney SF 51 var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1975 fyrir Borgey hf. á Höfn í Hornafirði.

Hvanney SF 5, sem var lengd og yfirbyggð árið 1987, var í flota Hornfirðinga til ársins 2004 er hún var seld til Ólafsvíkur þar sem hún fékk nafnið Guðmundur Jensson SH 717.

Árin 2014 til 2016 bar báturinn nafnið Markús fyrst SH 271, síðan HF 177 og loks KE 177.

Árið 2016 fékk báturinn nafnið Klettur MB 8 og ári síðar varð hann Klettur ÍS 808 en það nafn ber hann enn þann dag í dag.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd