
Harpa HU 4 frá Hvammstanga, sem liggur hér við bryggju á Akureyri vorið 2017, hét upphaflega Skálavík SU 500 og var smíðuð árið 1970 hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf.
Báturinn hefur borið ýmis nöfn í gegnum tíðina og tekið talsverðu breytingum og mælist nú 65 BT að stærð.
Frá árinu 2008 hefur hann borið nafnið Harpa HU 4 og er gerður út af BBH útgerð ehf. frá Hvammstanga.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.