Garðar og María Júlía í Húsavíkurslipp

260. Garðar – 151. María Júlía. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Fyrir þrem árum birtist hér mynd sem tekin var rétt fyrir síðustu aldamót í Stykkishólmi og sýndi báta í slippnum hjá Skipavík.

Þetta voru þrír bátar, Sveinbjörn Jakobsson SH 10, Haukaberg SH 20 og María Júlía BA 36.

Í dag myndaði ég tvo af þessum bátum saman í Húsavíkurslipp, Garðar sem áður hét Sveinbjörn Jakobsson SH 10 og er í eigu Norðursilglingar, og Maríu Júlíu.

Sá þriðji sem var á myndinni heitir í dag Patrekur BA 64.

Þess má geta að Garðar og María Júlía eru bæði smíðuð í Danmörku.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd