Freyja GK 364

1209. Freyja GK 364 ex Pólastjarnan KE 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Freyja GK 364 hét upphaflega Ólafur Sólimann KE 3 og var báturinn smíðaður hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernhardssonar á Ísafirði árið 1972.

Árið 1977 fékk báturinn nafnið Pólstjarnan KE 3 en frá árinu 1980 hét hann Freyja GK 364 með heimahöfn í Garðinum.

Árið 1988 var byggt yfir Freyju og skipt um brú.

Freyja var seld til Írlands árið 1994 og tíu árum síðar var hann kominn til Króatíu.

Fyrsti viðkomustaður bátsins erlendis var á Írlandi en þaðan fór hann árið 2004 til Króatíu.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd