Atlavík BA 108

1263. Atlavík BA 108 ex Örlygur KE 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002.

Atlavík BA 108 hét upphaflega Sæfari EA 333 og var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1972.

Sæfari var með heimahöfn á Hauganesi og var gerður þaðan út til ársins 1977 en þá fékk hann nafnið Búi EA 100 með heimahöfn á Dalvík.

Ári síðar var báturinn seldur til Húsavíkur þar sem hann fékk nafnið Árný ÞH 228.

Árný var seld til Hafnar í Hornafirði árið 1983 og var SF 6. Árið 1991 var báturinn seldur til Grímseyjar og þaðan var hann gerður út til ársins 1999 undir nafninu Sæbjörg EA 184.

Frá Grímsey fór báturinn til Keflavíkur þar sem hann fékk nafnið Örlygur KE 111 en árið 2001 fékk hann nafnið Atlavík BA 108 með heimahöfn á Bíldudal.

Árið 2004 varð báturinn Atlavík RE 159 og hefur legið í Reykjavík um langa tíð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd