
Hér gefur að líta Sæfara TH 271 í fjörunni framan við hafnarstéttina á Húsavík en bátinn, sem síðar varð ÞH 271, lét Héðinn Maríusson smíða fyrir sig í Hafnarfirði árið 1962.
Sæfari var smíðaður í bátastöðinni Bárunni og var fjögur tonn að stærð og búinn 25 hestafla Guldner vél. Í hann fór síðar Petter vél og önnur sömu gerðar leysti hana af hólmi. Að lokum var sett í hann 36 hestafla Bukh vél.
Helgi sonur Héðins eignaðist bátinn 1976 og fær hann þá nafnið Bjarki ÞH 271 þar sem aðrir aðila reyndust eiga einkaleyfi á Sæfaranafninu.
Helgi réri Bjarka fram yfir aldamótin síðustu en gaf hann að lokum Sjóminjasafninu á Húsavík.
Báturinn var afskráður af skipaskrá árið 2002.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.