
Sigurpáll ÞH 130 kemur hér að landi á Húsavík sumarið 2007 en báturinn hét upphaflega Sjöfn ÞH 142 frá Grenivík, smíðaður í skipasmíðastöðinni Vör á Akureyri 1972.
Síðar Ásgeir Torfason ÍS 96, Rúna RE 150, Óskar ÍS 68, Guðbjörg GK 517, og loks Sigurpáll ÞH 130.
Sigurpáll skemmdist í eldi á Skjálfanda haustið 2008 og var seldur í því ástandi.
Nýir eigendur settu á bátinn nýtt stýrishús en hann heitir í dag Vilborg ST 100 og er með heimahöfn í Djúpuvík á Ströndum.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.