2430. Sæljón RE 19. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæljón RE 19 kemur hér til hafnar í Keflavík eitt haustið eftir dragnótaróður í Bugtinni. Báturinn er einn hinna svokölluðu Kínabáta sem smíðaðir voru í Dalian í Kína og komu til landsins á árinu 2001. Sæljón var smíðað fyrir Sæljón ehf. í Reykjavík og leysti af hólmi 29 … Halda áfram að lesa Sæljón RE 19
Month: júní 2025
Benni Sæm að veiðum
2430. Benni Sæm GK 26 ex Sæljón RE 19. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir sem nú birtast í gær af dragnótabátnum Benna Sæm GK 26 þar sem hann var að veiðum á Keflavík sem er rétt austan við Krísuvíkurberg, út af svo kölluðum Bergendum. Benni Sæm hét upphaflega Sæljón RE … Halda áfram að lesa Benni Sæm að veiðum
National Geographic Explorer
IMO 8019356. National Geographic Explorer. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Leiðangursskipið National Geographic Explorer var á Húsavík í dag líkt og CH Vega sem birtist hér á síðunni í gær. Skipin létu úr höfn síðdegis og hér bortast myndir af því fyrrnefnda. Skipið var smíðað árið 1982 í Ulstein Verft AS í Noregi og bar nafnið … Halda áfram að lesa National Geographic Explorer
Vestmannaey VE 54
2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Vestmannaey VE 54 kemur hér til hafnar í Grindavík í vikunni. Hún var með fullfermi, eða um 230 kör sem gera um 76 tonn. Vestmannaey er í eigu Bergs- Hugins hf. dótturfélags Síldarvinnslunnar og var smíðuð í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Noregi. 2954. Vestmannaey VE 54. … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54
SH Vega kom til Húsavíkur
IMO 9895252. SH Vega. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Skemmtiferðaskipið SH Vega kom til Húsavíkur nú undir kvöld og lagðist að Bökugarði. SH Vega siglir undir fána Panama með heimahöfn í Panamaborg. Skipið var smíðað í Helsinki í Finnlandi árið 2022 og mælist 10,617 GT að stærð. Lengd þess er 113 metrar og breiddin 24 metrar. … Halda áfram að lesa SH Vega kom til Húsavíkur
Skálafell ÁR 50
100. Skálafell ÁR 50 ex Haförn SK 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Skálafell ÁR 50, sem hér sést koma til hafnar í Reykjavík, fór í brotjárn árið 2014 en það var smíðað árið 1959. Smíðin fór fram í Noregi en báturinn var smíðaður fyrir Fáskrúðsfirðinga og fékk hann nafnið Hoffell SU 80. Síðar hét hann … Halda áfram að lesa Skálafell ÁR 50
Eldeyjar Boði GK 24
971. Eldeyjar Boði GK 24 ex Boði GK 24. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Eldeyjar Boði GK 24 hét upphaflega Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 102 og var smíðaður fyrir Miðfell hf. í Hnífsdal árið 1965. Smíðin fór fram í skipasmíðastöðinni V.e.b Elbewerft í Boizenburg í A-Þýskalandi. Báturinn var sá fjórði sem kom í fyrri seríunni sem taldi tíu … Halda áfram að lesa Eldeyjar Boði GK 24
Aðalvík KE 95
971. Aðalvík KE 95 ex Eldeyjarboði GK 24. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Aðalvík KE 95 liggur hér við bryggju í Njarðvík um árið og sjá má glitta í Njarðvík KE 93 fyrir aftan hana. Við hina bryggjuna er Ágúst Guðmundsson GK 95. Aðalvík var smíðuð í Boizenburg í Þýskalandi árið 1965 og hét upphaflega Guðrún Guðleifsdóttir … Halda áfram að lesa Aðalvík KE 95
Jökull hélt til veiða í kvöld
2991. Jökull ÞH 299 ex ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Jökull ÞH 299 hélt til veiða frá Húsavík í kvöld eftir Sjómannadagsfrí en báturinn stundar grálúðuveiðar í net. Spáin frekar leiðinleg og kallarnir fengu norðanáttina beint í nefið. Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er 44 … Halda áfram að lesa Jökull hélt til veiða í kvöld
Villi Páls í skemmtisiglingu
7865. Villi Páls. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hér er björgunarskipið Villi Páls í skemmtisglingu í gær, Sjómannadaginn en hann er í eigu Björgunarsveitarinnar Garðars á Húsavík. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution









