Kristinn HU 812

2860. Kristinn HU 812 ex Kristinn SH 812. Ljósmynd Jón Steinar 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af línubátnum Kristni HU 812 koma til hafnar í Grindavík í gær. Kristinn var smíðaður í Trefjum í Hafnarfirði árið 2010 og er af gerðinni Cleopatra 50. Báturinn var smíðaður fyrir útgerðarfélagið Rederij Dezutter í Belgíu og hét upphaflega … Halda áfram að lesa Kristinn HU 812

Heimaey VE 1 kom til heimahafnar í morgun

3060. Heimaey VE 1 ex Pathway PD 165. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Heimaey VE 1, hið nýja uppsjávarveiðiskip Ísfélagsins, kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum í morgun. Blíðskaparveður var í Vestmannaeyjum í morgun eins og þessi mynd Tryggva sýnir og ekki amaleg byrjun á Sjómannadagshelginni. Skipið, sem áður hét Pathway PD 165, er allt hið glæsilegasta … Halda áfram að lesa Heimaey VE 1 kom til heimahafnar í morgun

Fram kom í dag

IMO 9370018. Fram. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Norska leiðangursskipið Fram kom til Húsavíkur í morgun og það gerði einnig NG Explorer. Skipið er nefnt eftir skipi norsku landkönnuðanna Roald Amundsen og Fridtjof Nansen.  Fram var smíðað á Ítalíu árið 2007, skipið er 113 metrar að lengd, breidd þess er 26 metrar og það mælist 11,647 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Fram kom í dag

Dalaröstin í skemmtisiglingu

1639. Dalaröst ÞH 40 ex Dalaröst ÁR 63. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Þá er Sjómannadagurinn framundan og því upplagt að birta eina gamla mynd af Dalaröstinni í skemmtisiglingu á Skjálfanda árið 2007. Útgerðarfélagið Flóki ehf. keypti bátinn frá Þorlákshöfn árið 1999 en þar bar hann nafnið Dalaröst ÁR 63. Báturinn var smíðaður í Noregi 1978 … Halda áfram að lesa Dalaröstin í skemmtisiglingu

Valbjörn ÍS 307

1686. Valbjörn ÍS 307 ex Gunnbjörn ÍS 302. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Rækjubáturinn Valbjörn ÍS 307 kemur hér til hafnar á Húsavík í septembermánuði árið 2012. Það spáði brælu og bátarnir leituðu hafnar. Valbjörn var smíðaður í Njarðvík árið 1984 og hét upphaflega Haukur Böðvarsson ÍS 847. Báturinn, sem var 57 brl. að stærð og … Halda áfram að lesa Valbjörn ÍS 307