1438. Njörður KÓ 7 ex Fiskir HF 51. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Njörður KÓ 7 kemur hér að landi í Sandgerði um árið en hann var smíðaður á Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri 1975 og hét upphaflega Vinur SH 140. Árið 1976 fékk Vinur, sem er 30 brl. að stærð, nýja heimahöfn á Hólmavík og … Halda áfram að lesa Njörður KÓ 7
Month: apríl 2025
Misje Verde á Húsavik
IMO 9927433. Misje Verde. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Flutningaskipið Misje Verde er í höfn á Húsavíkur þar sem skipað er upp hráefnisfarmi fyrir kísilver PCC á Bakka. Misje Verde var smíðað á Sri Lanka árið 2023 og siglir undir norsku flaggi. Heimahöfn skipsins er Bergen. Skipið er 89,5 metra langt, breidd þess er 15,4 metrar … Halda áfram að lesa Misje Verde á Húsavik
Smári SH 221
778. Smári SH 221 ex Smári RE 59. Ljósmynd Þorgrímur Aðalgeirsson. Á þessari mynd Þorgríms Aðalgeirssonar gefur að líta Smára SH 221 í slipp en hann var upphaflega ÞH 59. Smári var smíðaður í Skipasmíðastöð Hafnarfjarðar hf. árið 1949 og var 63 brl. að stærð. Hann var smíðaður fyrir Vísi hf. Húsavík sem gerði bátinn … Halda áfram að lesa Smári SH 221
Rakel María ÍS 199
2086. Rakel María ÍS 199. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rakel María ÍS 199 frá Bolungarvík siglir hér út úr höfninni í Keflavík um árið en hún var smíðuð í Noregi árið 1990. Báturinn, sem er 9,45 BT að stærð, hefur borið ýmis nöfn í gegnum tíðina en heitir í dag Eva Björt ÍS 86 og er … Halda áfram að lesa Rakel María ÍS 199
Kap VE 4
Kap VE 4 ex Kap II VE 7. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Netabáturinn Kap VE 4 kemur hér úr róðri í síðustu viku en hún er eini báturinn sem gerður er út til netaveiða frá Vestmannaeyjum þessa vertíðina. Kap hét upphaflega Óskar Magnússon AK 177 var smíðaður í Stálvík árið 1967 fyrir Þórð Óskarsson hf. á Akranesi. … Halda áfram að lesa Kap VE 4
Margrét GK 33
2952. Margrét GK 33. Ljósmynd Jón Steinar 2025. Jón Steinar tók þessar myndir í gærmorgun af línubátnum Margréti GK 33 koma að landi í Sandgerði. Aflinn hjá henni var sagður rúm 10 tonn, skiptist til helminga þorskur og ýsa. Það er Nesfiskur ehf. sem gerir bátinn út en hann var smíðaður hjá Víkingbátum árið 2019. … Halda áfram að lesa Margrét GK 33
Þorsteinn í slipp á Húsavík
926. Þorsteinn GK 15 ex Þorsteinn EA 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ég hef áður birt mynd af Þorsteini GK 15 í slipp á Húsavík en læt samt aðra vaða. Báturinn var smíðaður fyrir Aðalstein Loftsson á Dalvík í Falkenberg í Svíþjóð árið 1946 og hefur alla tíð heitið Þorsteinn. Upphaflega EA 15, þá GK 15 … Halda áfram að lesa Þorsteinn í slipp á Húsavík
Vestmannaey VE 54 kom með fullfermi til Grindavíkur í gær
2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Það voru austsuaustan 12-13 metrar og rigningarsuddi í honum eins og ljósmyndarinn orðaði það þegar Vestmannaey VE 54 kom til hafnar í Grindavík í gærmorgun. Vestmannaey var með fullfermi í þessum túr og fer aflinn að mestu til vinnslu hjá Vísi í Grindavík. Vestmannaey er í eigu … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54 kom með fullfermi til Grindavíkur í gær
Garpur RE 148
2018. Garpur RE 148 ex Garpur SH 95. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar flottu myndir af Garpi RE 148 í gær en báturinn mun stunda grásleppuveiðar frá Grindavík í vor. Garpur var smíðaður árið 1989 á Seyðisfirði og hét upphaflega Litlanes ÞH 52, eigandi Óli Þorsteinsson á Þórshöfn. Litlanes ÞH 52 var … Halda áfram að lesa Garpur RE 148
Jóhanna Gísladóttir landaði í Grindavík í gær
2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar 2025. Jóhanna Gísladóttir kom til löndunar í Grindavík snemma í gærmorgun og var aflinn um 240 kör sem gerir um það bil 76 tonn. Uppistaða aflans var þorskur, ýsa og steinbítur. Vísir keypti togarann frá Vestmannaeyjum árið 2021 þar sem hann bar nafnið … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir landaði í Grindavík í gær









