IMO 9195858. Incra ex Fluvius Taw. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Flutningaskipið Incra kom til Húsavíkur í gær með áburðarfarm. Skipið var smíðað árið 2000 og fór smíðin fram hjá Damenskipasmíðastöðinni í Hoogezand í Hollandi. Incra er 95,05 metrar að lengd, breidd skipsins er 13,5 metrar og það mælist 2,998 GT að stærð. Skipið siglir undir … Halda áfram að lesa Incra kom í gær
Month: apríl 2025
Hav Brim kom í morgun
IMO 9361756. Hav Brim ex Arklow Freedom. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Færeyska flutningaskipið Hav Brim kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum þar sem farmi þess verður skipað upp. Skipið var smíðað í Astilleros de Murueta skipasmíðastöðinni á Norður-Spáni árið 2008 og hét áður Arklow Freedom. Hav Brim er 89,95 metrar að lengd, … Halda áfram að lesa Hav Brim kom í morgun
Gullfaxi ÓF 11
1900. Gullfaxi ÓF 11 ex Gullfaxi NK 6. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér birtast myndir af Gullfaxa ÓF 11 teknar á Árskógssandi og Húsavík. Gullfaxi var upphaflega NK 6 og var smíðaður fyrir Guðmund Þorleifsson í Noregi árið 1988. Gullfaxi varð ÓF 11 árið 1996 og var það til ársins 2001. Þá fékk Gullfaxi einkennisstafina GK … Halda áfram að lesa Gullfaxi ÓF 11
Særún EA 251
2793. Særún EA 251 ex Nanna Ósk II SU 90. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Grásleppubáturinn Særún EA 251 kemur hér að landi á Húsavík í gær en það er GPG Seafood ehf. sem gerir bátinn út. Særún hét upphaflega Nanna Ósk II ÞH 133 frá Raufarhöfn. Hún er af gerðinni Cleopatra 38 og var smíðuð hjá Trefjum í Hafnarfirði árið … Halda áfram að lesa Særún EA 251
Sigrún Björk kemur að landi
7882. Sigrún Björk ÞH 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Handfærabáturinn Sigrún Björk ÞH 100 kemur hér að landi á Húsavík nú síðdegis en það er Dodda ehf. sem gerir hann út. Sigrún Björk er Sómi 990 sem Víkingbátar smíðuðu fyrir Doddu ehf. og afhentu í aprílmánuði árið 2024. 7882. Sigrún Björk ÞH 100. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson … Halda áfram að lesa Sigrún Björk kemur að landi
Kristín ÞH 55
7526. Kristín ÞH 55 ex Kristín HU 219. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Strandveiðibáturinn Kristín ÞH 55 kom til Húsavíkur í dag en veiðar mega hefjast 5. maí nk. Kristín er gerð út af Möðruvöllum ehf. á Akureyri en er með heimahöfn á Raufarhöfn þaðan sem hún hefur jafnan verið gerð út. Hér má lesa nánar um … Halda áfram að lesa Kristín ÞH 55
Víkingur AK 100
2882. Víkingur AK 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Nóta- og togskipið Víkingur AK 100 liggur hér við bryggju í Reykjavík um páskana og veðurblíða algjör. Það er Brim hf. sem gerir Víking út en hann var smíðaður í skipasmíðastöðinni Celiktrans Deniz Insaat Ltd í Tyrklandi og kom til landsins í lok árs 2015. Með því … Halda áfram að lesa Víkingur AK 100
Stapafell SH 26
1434. Stapafell SH 26 ex Leifur EA 888. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Dragnótabáturinn Stapafell SH 26 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum um helgina en það er Bárður SH 81 ehf. sem gerir hann út. Útgerðin keypti bátinn í fyrra og er hann með heimahöfn á Arnarstapa. Um bátinn, sem lengi hét Þorleifur EA 88, er … Halda áfram að lesa Stapafell SH 26
Bergur Vigfús GK 100
1371. Bergur Vigfús GK 100 ex Guðfinnur KE 19. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Bergur Vigfús GK 100 kemur hér að landi í Grindavík vorið 2003 en báturinn bar þetta nafn um tíma það ár. Upphaflega Vingþór NS 341 smíðaður árið 1974 á Seyðisfirði af Vélsmiðjunni Stál. Lengi vel Guðfinnur KE 19 og um bátinn má … Halda áfram að lesa Bergur Vigfús GK 100
Guðfinnur KE 19
1371. Guðfinnur KE 19 ex Sturlaugur ÁR 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Guðfinnur KE 19 hét upphaflega Vingþór NS 341 og var smíðaður árið 1974 á Seyðisfirði af Vélsmiðjunni Stál. Vingþór var gerður út frá Seyðisfirði til ársins 1980 en þá var hann seldur til Þorlákshafnar þar sem hann fékk nafnið Sturlaugur ÁR 7. Árið 1982 … Halda áfram að lesa Guðfinnur KE 19









