2728. Hringur GK 18.ó smynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Hringur GK 18 kemur hér að landi í Sandgerði sumarið 2012. Báturinn er af gerðinni Seigur 1120 og var smíðaður á Siglufirði árið 2006. Árið 2019 fékk báturinn nafnið Halla Daníelsdóttir RE 770 en frá árinu 2022 hefur hann borið nafnið Fíi ÞH 11 og er með … Halda áfram að lesa Hringur GK 18
Month: mars 2025
Dagfari kastar nótinni
1037. Dagfari ÞH 70. Ljósmynd Skarphéðinn Ívarsson. Dagfari ÞH 70 kastar hér loðnunótinni um árið en það var Njörður hf. sem gerði hann út. Dagfari var smíðaður fyrir Barðann hf. á Húsavík í Boizenburg í Austur-Þýskalandi. Hann kom til heimahafnar á Húsavík 17, maí árið 1967. Árið 1977 er skráður eigandi Útgerðarfélagið Njörður hf. en … Halda áfram að lesa Dagfari kastar nótinni
Náttfari kemur úr fyrstu ferð ársins
993. Náttfari ex Byrefjell. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Náttfari kemur hér úr fyrstu hvalaskoðunarferð ársins frá Húsavík sl. mánudag en það er Norðursigling sem gerir bátinn út. Náttfari var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1965 og hét upphaflega Þróttur SH 4. Norðursigling keypti bátinn árið 1998 en þá hafði hann legið um árabil í … Halda áfram að lesa Náttfari kemur úr fyrstu ferð ársins
Skúmur KE 122
450. Skúmur KE 122 ex Sigurvin Breiðfjörð KE 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skúmur KE 122 hét upphaflega Geir KE 1 og var var smíðaður árið 1956 í Þýskalandi. Í lok árs 1964 var Geir seldur frá Keflavík tl Reykjavíkur og fékk varð Geir RE 406. Hér má lesa sögu bátsins en nafnið Skúmur bar hann … Halda áfram að lesa Skúmur KE 122
Kristbjörg ST 39
2207. Kristbjörg ST 39 ex Bláfell HU 179. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Kristbjörg ST 39 hét upphaflega Krókur RE 146 og var smíðaður hjá Mótun árið 1993. Síðar bar hann nöfnin Völusteinn ÍS 89 með heimahöfn í Bolungarvík og Bláfell HU 179 með heimahöfn á Hvammstanga. Báturinn fékk nafnið Kristbjörg ST 39 árið 2010 og … Halda áfram að lesa Kristbjörg ST 39
Sundhani ST 3
1859. Sundhani ST 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Sundhani ST 3 var smíðaður árið 1987 hjá Mánavör hf. á Skagaströnd fyrir aðila á Drangsnesi og hefur átt þar heimahöfn alla tíð. Báturinn var lengdur árið 1991 og er tæplega 13 metrar að lengd. Sundhani er m.a notaður til siglinga með ferðamenn út í Grímsey á … Halda áfram að lesa Sundhani ST 3
Maggý VE 108
1855. Maggý VE 108 ex Ósk KE 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Dragnótabáturinn Maggý VE 108 kemur hér til hafnar í Sandgerði eftir róður sl. vor. Maggý, sem gerð er út af Narfa ehf. í Vestmannaeyjum, var smíðuð í Póllandi 1988 og hét upphaflega Skálavík SH 208 frá Ólafsvík. Báturinn, sem er 118 BT að stærð, … Halda áfram að lesa Maggý VE 108
Aðalsteinn Jónsson SU 11 kom til Húsavíkur í dag
2929. Aðalsteinn Jónsson SU 11 ex Libas. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Aðalsteinn Jónsson SU 11 kom til Húsavíkur í dag en stoppaði stutt, eiginlega örstutt en erindið var að setja menn frá Hafró í land. Skipið, sem hefur verið við loðnuleit síðustu daga ásamt Polar Ammassak, lagðist að Bökugarðinum og er þetta stærsta fiskiskip sem … Halda áfram að lesa Aðalsteinn Jónsson SU 11 kom til Húsavíkur í dag
Áskell EA 48
1807. Áskell EA 48 ex Hákon ÞH 250. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Áskell EA 48 kemur hér til hafnar í Reykjavík um árið og ansi líklegur til að fara í slipp. hét upphaflega Hákon ÞH 250 og var smíðuð fyrir Gjögur h/f í Ulsteinsvik, Noregi árið 1987. Skipið er 820 brúttórúmlestir, 57 metrar að lengd og … Halda áfram að lesa Áskell EA 48
Garðar GK 53
1305. Garðar GK 53 ex Benni Sæm GK 26. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Garðar GK 53 hét upphaflega Auðbjörg HU 6 frá Skagaströnd og var smíðaður árið 1973 í Skipavík hf. í Stykkishólmi. Frá Skagaströnd fór báturinn á Hauganes við Eyjafjörð og varð Auðbjörg EA 22, þetta var árið 1977. Árið 1988 var báturinn seldur til … Halda áfram að lesa Garðar GK 53









