Bátar við bryggju á Árskógssandi

Bátar við bryggju á Árskógssandi. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggja við bryggju á Árskógssandi bátarnir Særún EA 251, Sólrún EA 151 og Heiðrún EA 28 sem var nýlögst að. Myndin var tekin ca. 1985 að vori ef ég man rétt. Eini báturinn sem enn er í flotanum er Sólrún sem í dag heitir Bjössi Sör … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju á Árskógssandi

Vörður landaði í Grindavík í gær

2962. Vörður ÞH 44 landaði í Grindavík í gær. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson. Vörður ÞH 44 kom í gærmorgun til löndunar í Grindavík. Aflinn var um 140 kör eftir tæpa tvo sólarhringa á veiðum. Jón Steinar tók þessar myndir af Verði sem hélt út aftur að löndun lokinni. Jón Steinar bendir á að þessi löndun … Halda áfram að lesa Vörður landaði í Grindavík í gær

Ágústa Haraldsdóttir VE 108.

Ágústa Haraldsdóttir VE 108 ex Haraldur EA 62. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Ágústa Haraldsdótir VE 108 hét upphaflega Gnýfari SH 8 og var smíðaður árið 1960 í Dráttarbrautinni h/f í Neskaupstað fyrir Gnýfara h/f í Grundarfirði. Báturinn var 65 brl. að stærð, upphaflega búinn 400 hestafla MWM aðalvél en árið 1973 var sett í hann 370 … Halda áfram að lesa Ágústa Haraldsdóttir VE 108.