Svalbarði í slipp á Akureyri

1352. Svalbarði SI 302 ex Svalbakur EA 302. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson.

Skuttogarinn Svalbarði SI 302 er hér í slipp á Akureyri en hann hét áður Svalbakur EA 302.

Útgerðarfélag Akureyringa keypti systurskipin Stellu Karinu og Stellu Kristinu frá Færeyjum árið 1973 og komu þau til heimahafnar á Akureyri í desember það ár.

Skipin voru byggð í Sovikens Verft A/S í Noregi á árunum 1968—1969 og voru 62 metrar að lengd og 10 metra breið. Þau mældust 834 brl. að stærð.

Stella Karina fékk nafnið Svalbakur EA 302 en Stella Kristina nafnið Sléttbakur EA 304.

Árið 1996 var Svalbakur seldur til Siglufjarðar þar sem hann fékk nafnið Svalbarði SI 302. 

Svalbarði var seldur til Rússlands árið 2001.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd