
Nóta- og togskipið Hákon ÞH 250 frá Grenivík er hér að rækjuveiðum úti fyrir Norðurlandi um árið.
Hákon var smíðaður í Noregi árið 1987 og lesa má nánar um skipið hér.
Vorið 2001 fékk Hákon nafnið Áskell EA 48 en nýr og stærri Hákon leysti hann af hólmi. Það var svo sumarið 2008 sem hann fékk nafnið Birtingur NK 119 og eigandi Síldarvinnslan.
Síðla sumars 2009 var Birtingur seldur til Grænlands og fékk þá nafnið Erika og heimahöfnin Tasilaq.
Erika er nú undir flaggi Marakkó með heimahöfn í Agadir.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.