124. Tjaldanes GK 525 ex Gaukur GK 660. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Netabáturinn Tjaldanes GK 525 kemur hér til hafnar í Njarðvík sumarið 2004. Báturinn var smíðaður árið 1962 í Molde í Noregi fyrir Gauksstaði h/f í Garði og hét Jón Finnsson GK 506. Hann hét síðar Friðþjófur SU 103, Verðandi KÓ 40 og Verðandi … Halda áfram að lesa Tjaldanes GK 525
Month: september 2024
Hafdís SK 4
2323. Hafdís SK 4 ex Hafborg EA 242. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Dragnótabáturinn Hafdís SK 4 frá Sauðárkróki kemur hér að landi á Húsavík síðdegis í dag. Það er FISK Seafood sem gerir bátinn út en hann hét áður Hafborg EA úr Grímsey en Hafdísarnafnið fékk báturinn í nóvember í fyrra. Hafdís SK 4, sem … Halda áfram að lesa Hafdís SK 4
Ocean Albatros
IMO 9880661. Ocean Albatros. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024 Skemmtiferðaskipið Ocean Albatros kom til Húsavíkur snemma í morgun og stoppaði til hádegis. Skipið var smíðað í Kína og afhent í apríl á síðasta ári. Lengd þess er 104,4 metrar, breiddin 18,4 metrar og það mælist 8,181 GT að stærð. Skipið siglir undir fána Portúgal með heimahöfn … Halda áfram að lesa Ocean Albatros
Hagland Progress í Grindavík
IMO 9936343. Hagland Progress. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024. Norska flutningaskipið Hagland Progress kom til Grindavíkur sl. sunnudag með salt á vegum Saltkaupa til Vísis hf. Skipið kom með saltið frá Álasundi í Noregi sem er stór umskipunarhöfn fyrir salt. Hagland Progress var smíðað 2023 hjá Royal Bodewes í Hollandi og er 85 metrar að … Halda áfram að lesa Hagland Progress í Grindavík
Misje Vita
IMO 9927421. Misje Vita. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Misje Vita kom til Húsavíkur í gærkveldi eftir siglingu frá Hollandi. Skipið er með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Misje Vita var smíðað á Sri Lanka árið 2022 og siglir undir norsku flaggi. Heimahöfn skipsins er Bergen. Skipið er 89,5 metra langt, breidd þess er … Halda áfram að lesa Misje Vita
Haförn ÞH 26
1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Dragnótabáturinn Haförn ÞH 26 kemur hér að landi á Húsavík síðdegis í dag. Það er Uggi fiskverkun ehf. sem á Haförninn og gerir út en fyrirtækið keypti bátinn árið 2010. Haförn ÞH 26 hét áður Þorsteinn BA 1 frá Patreksfirði og smíðaður var í … Halda áfram að lesa Haförn ÞH 26
Hafsúla KE 46
1470. Hafsúla KE 46 ex Haförn ÍS 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hafsúla KE 46 hét upphaflega Hafsúlan SH 7, smíðuð fyrir Halldór S. Sveinsson í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. í Hafnarfirði árið 1976. Afhent í janúar 1977, 37 brl. að stærð búinn 365 hestafla Caterpillar aðalvél. Heimahöfn Rif á Snæfellsnesi. Í ágústmánuði 1977 var báturinn skráður … Halda áfram að lesa Hafsúla KE 46
Sigurvin GK 51
1453. Sigurvin GK 51 ex Þerna NS 113. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurvin GK 53 hét upphaflega Aldan RE 327 og var smíðaðir hjá Básum h/f í Hafnarfirði árið 1976. Báturinn heitir í dag Moby Dick og er gerður út til hvalaskoðunar frá Húsavík. Hér má lesa nánar um bátinn. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Sigurvin GK 51
Hildur
1354. Hildur ex Héðinn HF 28. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skonnorturnar Hildur og Ópal komu til Húsavíkur í gærmorgun og hér er það Hildur sem siglir inn til hafnar. Þær voru að koma frá Grænlandi þar sem siglt hefur verið með farþega um fjarðarkefi Scoresbysund. Hildur var byggð á Akureyri árið 1974 á Bátaverkstæði Gunnlauga og … Halda áfram að lesa Hildur
Suðurey VE 500
1258. Suðurey VE 500 ex Gunnar Jónsson VE 500. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Suðurey VE 500 hét upphaflega Gunnar Jónsson VE 500 og var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1972. Báturinn, sem var 147 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Jón Valgarð Guðjónsson, Vestmannaeyjum og Ísfell hf. Reykjavík. Árið 1974 var Gunnar Jónsson VE 500 … Halda áfram að lesa Suðurey VE 500









