
Togskipið Pálína Þórunn GK kom að landi í Sandgerði í morgun og ekki annað að sjá en að vel hafi fiskast.
Pálína Þórunn GK 49 hét áður Steinunn SF 10 en Nesfiskur hf. keypti hana af Skinney-Þinganesi hf. árið 2019.
Pálína Þórunn GK 49 hét upphaflega Helga RE 49 en Skinney-Þinganes keypti hana árið 2005 og gaf nafnið Steinunn SF 10. Hún var smíðuð í Kína árið 2001 og er um 29 metrar að lengd.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution