288. Þorsteinn Gíslason GK 2 ex Þorsteinn Gíslason KE 31. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þorsteinn Gíslason GK 2 er hér í slipp í Keflavík um árið, ca. 1986 minnir mig. Keflavík var lengi heimahöfn bátsins sem upphaflega hét Árni Geir KE 31 og síðar Þorsteinn Gíslason KE 31. Þorsteinn Gíslason var smíðaður í Þýskalandi 1959 og … Halda áfram að lesa Þorsteinn Gíslason í slipp
Month: janúar 2024
Wilson Calais kom til Húsavíkur í dag
IMO 9156101. Wilson Calais ex Steffen Sibum. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Calais kom til Húsvíkur í dag með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Skipið, sem var smíðað í Serbíu árið 2001, er tæplega 10 metra langt og breidd þess er 12,80 metrar. Það mælist 2,994 GT að stærð og siglir undir fána … Halda áfram að lesa Wilson Calais kom til Húsavíkur í dag
Þórunn Þórðardóttir sjósett í Vigo á Spáni
Þórunn Þórðardóttir bíður sjósetningar í Vigo á Spáni. Þórunn Þórðardóttir HF-300, nýtt hafrannsóknaskip Íslendinga verður sjósett í skipasmíðastöðinni Astilleros Armón í Vigo á Spáni kl. 14.30 að íslenskum tíma í dag, 12. janúar 2024. Í tilkynningu segir: Þórunn Þórðardóttir (1925-2007) sem skipið er nefnt eftir, var fyrsta íslenska konan með sérfræðimenntun í hafrannsóknum og var … Halda áfram að lesa Þórunn Þórðardóttir sjósett í Vigo á Spáni
Rúna RE 150
2462. Rúna RE 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Dragnótabáturinn Rúna RE 150 var smíðaður í Kína árið 2001 fyrir Úgerðarfélagi Rún sf. í Reykjavík. Í janúar árið 2005 fær báturinn nafnið Ósk KE 5 eftir að Útgerðarélagið Ósk ehf. keypti hann til Keflavíkur. Um mitt ár 2006 kaupir Útgerðarfélgið Haukur ehf. í Ólafsvík Óskina og nefnir Gunnar Bjarnason … Halda áfram að lesa Rúna RE 150
Guðrún VE 122
243. Guðrún VE 122 ex Guðrún GK 37. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Eins og kom fram í færslu um Guðrúnu GK 37 á dögunum var hún seld til Vestmannaeyja árið 1989. Kaupandi var Sæhamar sem lét strax yfirbyggja bátinn eins og sést á myndinni sem Tryggvi Sigurðsson tók. Guðrún VE 122 var 182 brl. að stærð … Halda áfram að lesa Guðrún VE 122
Framnes ÍS 708
1327. Framnes ÍS 708 ex Framnes 1 ÍS 708. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Framnes ÍS 708 liggur hér nýskveraður og fínn við slippkantinn á Akureyri en hann var smíðaður í Flekkefjørd í Norei árið 1973. Á miða Hauks Sigtryggs segir: 1327....Framnes I. ÍS 708... TF-OH. IMO: 7325485. MMSI: 251220110. Skipasmíðastöð: Flekkefjord Slipp & Mask.Fabr. A/S.Flekkefjord. … Halda áfram að lesa Framnes ÍS 708
Þórkatla GK 97
920. Þórkatla GK 97. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Þórkatla GK 97 var smíðuð árið 1960 í Þýskalandi fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða hf. sem gerði bátinn út til ársins 1988. Í lok þess árs keypti Skagstrendingur hf. bátinn, sem var 74 brl. að stærð, með kvóta og ári síðar var hann afskráður. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Þórkatla GK 97
Hælsvík GK 350
2361. Hælsvík GK 350 ex Bergur Pálsson EA 761. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hælsvík GK 350 hét upphaflega Bergur Pálsson EA 761 og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1999. Heimahöfn Dalvík. Báturinn, sem er af gerðinni Cleopatra 28, var seldur til Grindavíkur árið 2001 þar sem hann fékk nafnið Hælsvík GK 350. Árið 2006 … Halda áfram að lesa Hælsvík GK 350
Kópnes ST 46
88. Kópnes ST 46 ex Geirfugl GK 66. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Kópnes ST 46 kemur hér til hafnar á Húsavík þann 15. júlí árið 2003 þeirra erinda að láta gera við rækjutrollið. Báturinn hét upphaflega Héðinn ÞH 57, smíðaður í Noregi fyrir Húsvíkinga árið 1960. Héðinn ÞH 57 var seldur Fiskanesi h/f í Grindavík … Halda áfram að lesa Kópnes ST 46
Leynir ÍS 16
2325. Leynir ÍS 16 ex Leynir SH 120. Ljósmynd Magnús Jónsson 2024. Leynir ÍS 16 við bryggju í Reykjavík í morgun en hann er gerður út af Tjaldtanga ehf. og er með heimahöfn á Flateyri við Önundafjörð. Leynir hét upphaflega Reykjaborg RE 25 hét upphaflega Reykjaborg RE 25 og var smíðaður í Skipasmíðastöðinni á Ísafirði árið 1998. … Halda áfram að lesa Leynir ÍS 16









