Vörðufell GK 205

117. Vörðufell GK 205 ex Vörðufell HF 110. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Vörðufell GK 205 var gert út frá Grindavík árin 1983 til 1987 og þessi mynd sennilega tekin vorið 1986. Vörðufell hét upphaflega Blíðfari ÍS 42 og var með heimahöfn á Suðureyri, Báturinn var 10 brl. að stærð, smíðaður í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1970. … Halda áfram að lesa Vörðufell GK 205

Friðrik Sigurðsson ÁR 17

1084. Friðrik Sigurðsson ÁR 17 ex Jóhann Friðrik ÁR 17. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Friðrik Sigurðsson ÁR 17 er hér á útleið frá Vestmannaeyjum um árið en Tryggvi Sigurðsson tók myndina. Báturinn var smíðaður í Stálvík árið 1969 fyrir Hofsósbúa og hét upphaflega Halldór Sigurðsson SK 3. Það hafa birst myndir af honum á síðunni í … Halda áfram að lesa Friðrik Sigurðsson ÁR 17

Tasermiut GR-1-1

OUTX. Tasermiut GR-1-1 ex Þerney RE 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Grænlenski frystitogarinn Tasermiut GR-1-1 liggur hér í Reykjavíkurhöfn en hann hét í stuttan tíma Þerney RE 3 sl. haust. Brim hf. keypti togarann frá Grænlandi eins og lesa má hér en seldi aftur til Grænlands eins og lesa má hér. Tasermiut er með heimahöfn … Halda áfram að lesa Tasermiut GR-1-1

Súlan EA 300

1060. Súlan EA 300. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Súlan EA 300 en myndin var tekin um miðjan janúar árið 1987 þegar Nökkvi HU 15 var sjósettur hjá Slippstöðinni á Akureyri. Súlan tók hann á hliðina inn að slippkantinum. Súlan var 354 brl. að stærð, smíðuð í Fredrikstad í Noregi 1967 fyrir Leó Sigurðsson á Akureyri. Hún … Halda áfram að lesa Súlan EA 300

Víkingur AK 100

220. Víkingur Ak 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Víkingur AK 100 við bryggju á Akranesi sumarið 1986, ef ég man rétt. Víkingur var smíðaður í Þýskalandi 1960 sem síðutogari fyrir Síldar- og fiskimjölverksmiðju Akraness. Yfirbyggður og breytt í nótaskip árið 1977.  Sett var ný brú á Víking sumarið 1989 og var það Slippstöðin á Akureyri sem sá … Halda áfram að lesa Víkingur AK 100