
Kristbjörg ÞH 44 var smíðuð í Skipavík í Stykkishólmi árið 1975 fyrir Korra h/f á Húsavík og gerð út af þeirri útgerð til ársins 1992.
Þá keypti Höfði hf. á Húsavík bátinn og nefndi Kristey ÞH 25.
997 var Kristey ÞH 25 seld Jökli h/f á Raufarhöfn þar sem báturinn fékk nafnið Atlanúpur ÞH 270 og var gerður út á rækju.
Árið 1998 var Atlanúpur seldur Árnesi h/f í Þorlákshöfn og fékk hann nafnið Keilir GK 145.
Árið 2000 kaupir Siglfirðingur h/f bátinn sem heldur Keilisnafninu en verður SI 145.
Keili var breytt í skemmtibát á Húsavík og lauk þeim breytingum sumarið 2020 og fékk báturinn nafnð Örkin. Sami eigandi.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution