261. Ögmundur ÁR 3 ex Jónas Guðmundsson SH 18. Ljósmynd Vigfús Markússon. Ögmundur ÁR 3 var smíðaður í Stálvík hf. árið 1964 og hét upphaflega Sæhrímnir KE 57. Báturinn, sem var 176 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Hraðfrystihús Jökuls hf. Keflavík en árið 1972 er hann kominn vestur í Ólafsvík. Við það varð Sæhrímnir SH … Halda áfram að lesa Ögmundur ÁR 3
Month: október 2023
Bakkavík ÁR 100
1158. Bakkavík ÁR 100 ex Bjarnarvík ÁR 13. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1982. Bakkvík ÁR 100 kemur hér að landi í Þorlákshöfn vorið 1982 en báturinn var með heimahöfn á Eyrarbakka. Upphaflega hét báturinn Helgi Bjarnason NK 6, 15 brl. að stærð, smíðaður árið 1971 hjá Dráttarbrautinni hf. í Neskaupstað. Árið 1974 fékk Helgi Bjarnason skráninguna … Halda áfram að lesa Bakkavík ÁR 100
Haftindur HF 123
993. Haftindur HF 123 ex Halldóra HF 61. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Haftindur HF 123 hét upphaflega Þróttur SH 4 og smíðaður í Skipavík hf. árið 1965 fyrir Hólma h/f í Stykkishólmi. Báturinn hefur einnig borið nöfnin Morgunstjarnan, Páll Rósinkransson, Björn í Vík, Ása og Halldóra HF 61 áður en hann fékk nafnið Haftindur HF 123. … Halda áfram að lesa Haftindur HF 123
Gestur í Jörfa
Gestur í Jörfa. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Ekki hef ég neinar upplýsingar um trilluhornið Gest í Jörfa sem hér kemur að landi á Húsavík í haust. Sören Gestsson keypti hana í sumar og nefndi eftir föður sínum, Gesti Halldórssyni, sem jafnan var kenndur við húsið Jörfa sem stendur á Stangarbakkanum (Mararbraut) á Húsavík. Gestur, sem … Halda áfram að lesa Gestur í Jörfa
Jóhannes Briem kom til heimahafnar í gær
3025. Jóhannes Briem. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson 2023. Nýtt björgunarskip Landsbjargar, Jóhannes Briem, kom til heimahafnar í Reykjavík í gær. Báturinn var við hátíðlega athöfn afhentur Björgunarsveitinni Ársæli í Reykjavík. Jóhannes Briem er þriðja björgunarskipið sem smíðað er í skipasmíðastöðinni Kewatec í Finnlandi fyrir Landsbjörgu. Fyrst í röðinni var Þór frá Vestmannaeyjum og síðan kom … Halda áfram að lesa Jóhannes Briem kom til heimahafnar í gær
Egill ÍS 77
1990. Egill ÍS 77 ex Þröstur RE 21. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Egill ÍS 77 hét upphaflega Toppur GK 70 og smíðaður hjá Vélsmiðju Jónasar Þórðarsonar í Garðabæ, fyrir Sæmund Þórðarson á Vatnsleysuströnd. Árið 1993 kaupir Smári Einarsson bátinn og nefnir Þröst RE 21. Báturin var frekar stuttur í báða enda og mældist 9,9 brl. … Halda áfram að lesa Egill ÍS 77
Komið að lokum hjá Múlaberginu
1281. Múlaberg SI 22 ex Múlaberg ÓF 32. LJósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Eins og fram kom í fréttum í gær eru dagar Múlabergs SI 22 senn taldir eftir að bilun kom upp í skipinu og ekki talið svara kostnaði að gera við þennan hálfraraldar gamla Japanstogara. Togarinn hét upphaflega Ólafur Bekkur ÓF 2, hann var … Halda áfram að lesa Komið að lokum hjá Múlaberginu
Grótta RE 26
1171. Grótta RE 26 ex Grótta HF 35. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Grótta RE 26 hét upphaflega Skálafell ÁR 20 á íslenskri skipaskrá en báturinn var keyptur til landsins frá Noregi árið 1971, þá þriggja ára. Báturinn átti eftir aðð bera nöfnin Hegri KE 107, Heimir KE 77, Kópur ÁR 9 og Ársæll SH 88 … Halda áfram að lesa Grótta RE 26
Björgunarbáturinn Stella komin heim
7870. Stella. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 2023. Nýr björgunarbátur, Stella, kom til Flateyrar fyrir skömmu en hann er samskonar bátur og Villi Páls sem kom til Húsavíkur um svipað leyti. Bátarnir eru frá bátasmiðjunni Rafnari og var skrokkar þeirra smíðaðir af tyrkneskum undirverktökum bátasmiðjunnar eftir teikningu Rafnars. Um smíðina má lesa nánar hér en upphaflega stóð … Halda áfram að lesa Björgunarbáturinn Stella komin heim
Sólbakur EA 5
1212. Sólbakur EA 5 ex Bayard. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Togarinn Sólbakur EA 5 á toginu en hann var fyrsti skuttogari Útgerðarfélags Akureyringa h/f, kom til heimahafnar á Akureyri 8. febrúar 1972. Sólbakur var smíðaður í Gdynia í Póllandi fyrir franska útgerð og afhentur í árslok árið 1967. Hjá Frökkunum hét hann Bayard og heimahöfn … Halda áfram að lesa Sólbakur EA 5









