Særún EA 251

2793. Særún EA 251 ex Nanna Ósk II SU 90. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Þessar myndir af Særúnu EA 251 voru teknar á Dalvík í dag en báturinn tók þátt í sjóstangveiðimóti um helgina. Særún EA 251 var keypt frá Fáskrúðsfirði í vor en báturinn hét áður Nanna Ósk II. Það var Útgerðarfélagið Stekkjavík ehf. … Halda áfram að lesa Særún EA 251

Hafaldan EA 190

2326. Hafaldan EA 190 ex Konráð eldri EA 190. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Grímseyjarbáturinn Hafaldan EA 190 kemur hér að landi á Dalvík í dag en báturinn tók þátt í sjóstangveiðimóti um helgina. Báturinn hét upphaflega Hópsnes GK 118 og var smíðaður árið 1998 fyrir Stakkavík í Grindavík. Smíðin fór fram í Bátagerðinni Samtak í … Halda áfram að lesa Hafaldan EA 190

Rún EA 351

2711. Rún EA 251 ex Særún EA 351. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Rún EA 351 kemur hér til hafnar á Árskógsandi í dag eftir siglingu frá Dalvík. Báturinn, sem er af gerðinni Siglufjarðar-Seigur, var smíðaður á Siglufirði árið 2007 og hét upphaflega Lúkas ÍS 71 og var í eigu Álfsfells ehf. á Ísafirði.  Síðar, eða … Halda áfram að lesa Rún EA 351

Kalkvik á Skjálfanda

IMO 9341172. Kalkvik. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Flutningaskipið Kalkvik kom til hafnar á Húsavík síðdegis í dag og lagðist að Bökugarði. Skipið siglir undir færeyskum fánað og með heimahöfn í Þórshöfn, var smíðað í Þýskalandi árið 2007. Kalkvik er 5,325 GT að stærð, lengd þess er 114 metrar og breiddin 16 metrar. IMO 9341172. Kalkvik. … Halda áfram að lesa Kalkvik á Skjálfanda

Sigurbjörg Þorsteins BA 65

1100. Sigurbjörg Þorsteins BA 65 ex Erlingur GK 214. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurbjörg Þorsteins BA 65 frá Bíldudal kemur hér til hafnar á Húsavík um árið. Báturinn hét upphaflega Siglunes SH 22 frá Grundarfirði, smíðaður hjá Þorgeir og Ellert h/f árið 1970 fyrir Hjálmar Gunnarsson útgerðarmann. Hér má lesa nánar um bátinn sem gerður var … Halda áfram að lesa Sigurbjörg Þorsteins BA 65

Marina á Skjálfanda

IMO 9438066. Marina. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Farþegaskipið Marina liggur hér framundan Húsavíkurhöfða og farþegar þess selfuttir í land á skipsbátum. Skipið, sem var smíðað í Genova á Ítalíu árið 2011, siglir undir fána Marshalleyja og heimahöfn þess er Majuro. Lengd þess er 239,3 metrar og breiddin 32,2 metrar. Það mælist 66,084 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Marina á Skjálfanda