2770. Brimnes RE 27 ex Vesttind. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2015. Brimnes RE 27 hét upphaflega Vesttind og var smíðað hjá Solstrand AS í Tomrefjørd í Noregi árið 2003. Brim hf. keypti togarann, sem er 70,1 metrar að lengd, 14,6 metrar á breidd og mælist 2,880 BT að stærð, frá Noregi árið 2007. Brimnes var selt til Rússlands árið 2018. Með því að … Halda áfram að lesa Brimnes RE 27
Flokkur: Togarar
Snæfugl SU 20
1976. Snæfugl SU 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Snæfugl SU 20 var smíðaður hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Noregi fyrir Skipaklett hf. á Reyðarfirði. Snæfugl kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Reyðarfirði 24. janúar 1989. Skipaklettur hf. og Síldarvinnslan sameinuðust árið 2001. Um tíma var skipið leigt skosku útgerðarfyrirtæki og bar þá nafnið … Halda áfram að lesa Snæfugl SU 20
Snæfugl SU 20
1363. Snæfugl SU 20 ex Guðbjörg ÍS 46. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Snæfugl SU 20 hét upphaflega Guðbjörg ÍS 46 og var smíðuð fyrir Hrönn hf. á Ísafirði árið 1974. Smíðin fór fram hjá Flekkefjord Slipp og Maskinfabrikk í Noregi og kom Guðbjörg til heimahafnar á Ísafirði 20. mars 1974. Árið 1981 fékk togarinn það nafn sem … Halda áfram að lesa Snæfugl SU 20
Hulda Björnsdóttir GK 11 kom til heimahafnar í gær
3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024. Hulda Björnsdóttir GK 11, nýr ísfisktogari Þorbjarnar hf., kom til heimahafnar í Grindavík í gær og tók Jón Steinar þessar myndir. Togarinn var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Astilleros Armon í Gijon á Spáni norðanverðum. Hulda Björnsdóttir GK 11 er 1,864 BT að stærð. lengd hennar er … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11 kom til heimahafnar í gær
Breki VE 61
1459. Breki VE 61 ex Guðmundur Jónsson GK 475. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Breki VE 61 hét upphaflega Guðmundur Jónsson GK 475 og var smíðaður árið 1976 í Slipstöðinni á Akureyri. Skipð var smíðað fyrir Rafn hf. Sandgerði sem fjölveiðiskip en selt til Vestmannaeyja árið 1978. Það var Samtog hf. sem keypti skipið, sem var 491 brl. … Halda áfram að lesa Breki VE 61
Hulda Björnsdóttir GK 11 afhent í dag
3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Þorbjörn hf. 2024. Það var stór dagur í skipasmíðastöðinni í Gijón á Spáni í dag þegar Hulda Björnsdóttir GK 11 var afhent Þorbirni hf. að viðstöddum fulltrúum Þorbjarnar og skipasmíðastöðvarinnar Astilleros Armon. Frá þessu segir á Fésbókarsíðu fyrirtækisins sem veitti góðfúslegt leyfi til að myndbirtingar hér. Þar segir jafnframt: … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11 afhent í dag
Sigurbjörg ÁR 67 landaði í Eyjum
3018. Sigurbjörg ÁR 67. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2024. Sigurbjörg ÁR 67, nýjasta skip Ísfélagsins, landaði í fyrsta skiptið í Vestmannaeyjum í vikunni og tók Tryggvi Sigurðsson þessa mynd þegar hún hélt aftur til veiða í gær. Sigurbjörg var smíðuð hjá Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul í Tyrklandi og kom til landsins um miðjan júlímánuð. Skipið er … Halda áfram að lesa Sigurbjörg ÁR 67 landaði í Eyjum
Þerney við olíubryggjuna í Örfirisey
2960. Þerney RE 1 ex Ilivleq GR-2-21. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2024. Frystitogarinn Þerney RE 1 er hér við olíubryggjuna í Örfirisey á dögunum en það er Brim hf. sem geriri hann út. Þerney hét áður Ilivileq GR 2-201 og var gerður út af Arctic Prime Fisheries á Grænlandi. Togarinn var smíðaður í spænsku skipasmíðastöðinni Astilleros … Halda áfram að lesa Þerney við olíubryggjuna í Örfirisey
Snæfari HF 186
1615. Snæfari HF 186 ex Keilir GK 37. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Snæfari HF 186 kom inn í íslenska fiskiskipaflotann vorið 1982 og hét þá Einar Ben BA 377. Rúmu ari síðar fékk hann nafnið Keilir GK 37. Skipið var keypt frá Englandi þar sem það bar nafnið Boston Sea Sprite. Það var smíðað árið 1972 … Halda áfram að lesa Snæfari HF 186
Vestri BA 63
3030. Vestri BA 63 ex Tobis. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Rækjutogarinn Vestri BA 63 frá Patreksfirði kom til hafnar á Húsavík í dag og hafði hér stutta viðdvöl. Útgerðarfyrirtækið Vestri ehf. á Patreksfirði keypti skipið frá Noregi og kom hann í fyrsta skipti til heimahafnar þann 9. apríl árið 2022. Í Noregi hét togarinn Tobis … Halda áfram að lesa Vestri BA 63









