2350. Árni Friðriksson HF 200 ex Árni Friðriksson RE 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson HF 200 er hér í Hafnarfjarðarhöfn í byrjun maímánaðar. Árni Friðriksson, sem var upphaflega RE 200, var smíðaður í Asmar skipasmíðistöðinni í Chile og afhent Hafrannsóknastofnun árið 2000. Með því að smella á myndina er hægt að skoða … Halda áfram að lesa Árni Friðriksson HF 200
Flokkur: Önnur skip
Árni Friðriksson RE 100
1055. Árni Friðriksson RE 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson RE 100 var smíðaður í Englandi árið 1967 og þjónaði Hafrannsóknarstofnun Íslands fram til aldamóta þegar nýtt og stærra skip tók við hlutverki hans. Árni Friðriksson RE 100, sem er 449 brl. að stærð, var seldur til Færeyja árið 2001. Með því að smella … Halda áfram að lesa Árni Friðriksson RE 100
Kleppsvík
984. Kleppsvík ex Jötunn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Kleppsvík RE var á Húsavík haustið 2003 og var þessi mynd tekin þá en unnið var að dýpkun í höfninni. Upphaflega hét báturinn Jötunn og var smíðaður árið 1965 fyrir Reykjavíkurhöfn. Smíðin fór fram í Stálvík og hafði báturinn, sem var 27 brl. að stærð, smíðanúmer 4 … Halda áfram að lesa Kleppsvík
Björgunarskipið Gunnar Friðriksson í slipp á Húsavík
2292. Gunnar FRiðriksson í slipp á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Hér gefur að líta björgunarskipið Gunnar Friðriksson í slipp á Húsavík þann 11. október árið 2000. Ekki man ég nú hvaða erindi hann átti en samkvæmt samtímaheimildum áttu Ísfirðigar von á nýjum Gunnari Friðrikssyni til heimahafnar þann 30. september þetta haust. Og í fréttinni … Halda áfram að lesa Björgunarskipið Gunnar Friðriksson í slipp á Húsavík
Baldur
3039. Baldur ex Røst. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Breiðafjarðarferjan Baldur fór niður úr dokkinni í Hafnarfirði í dag og tók Maggi Jóns þessa mynd af henni við bryggju. Ferjan var smíðuð árið 1991, tekur 250 farþega og rúmar fimm stóra flutningabíla. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. … Halda áfram að lesa Baldur
Nýja hafrannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir sjósett 15. desember
Nýja hafrannsóknarskipið Þórunn Þórðardóttir. Lj. Stjórnarráðið. Nýtt hafrannsóknaskip verður sjósett í skipasmíðastöðinni Astilleros Armón í Vigo á Spáni 15. desember nk. Við sjósetningu mun skipið formlega hljóta nafnið Þórunn Þórðardóttir og fær það einkennisstafina HF 300. Skipið mun draga nafn sitt af Þórunni Þórðardóttur sem var fyrsta íslenska konan með sérfræðimenntun í hafrannsóknum og var … Halda áfram að lesa Nýja hafrannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir sjósett 15. desember
Jóhannes Briem kom til heimahafnar í gær
3025. Jóhannes Briem. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson 2023. Nýtt björgunarskip Landsbjargar, Jóhannes Briem, kom til heimahafnar í Reykjavík í gær. Báturinn var við hátíðlega athöfn afhentur Björgunarsveitinni Ársæli í Reykjavík. Jóhannes Briem er þriðja björgunarskipið sem smíðað er í skipasmíðastöðinni Kewatec í Finnlandi fyrir Landsbjörgu. Fyrst í röðinni var Þór frá Vestmannaeyjum og síðan kom … Halda áfram að lesa Jóhannes Briem kom til heimahafnar í gær
Björgunarbáturinn Stella komin heim
7870. Stella. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 2023. Nýr björgunarbátur, Stella, kom til Flateyrar fyrir skömmu en hann er samskonar bátur og Villi Páls sem kom til Húsavíkur um svipað leyti. Bátarnir eru frá bátasmiðjunni Rafnari og var skrokkar þeirra smíðaðir af tyrkneskum undirverktökum bátasmiðjunnar eftir teikningu Rafnars. Um smíðina má lesa nánar hér en upphaflega stóð … Halda áfram að lesa Björgunarbáturinn Stella komin heim
Villi Páls á Skjálfanda
7865. Villi Páls á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Eins og kom fram hér á síðunni í gær kom björgunarskipið Villi Páls kom til heimahafnar á Húsavík síðdegis í gær en það er í eigu Björgunarsveitarinnar Garðars. Villi Páls er frá bátasmiðjunni Rafnari og var skrokkur hans smíðaður af tyrkneskum undirverktökum bátasmiðjunnar eftir teikningu Rafnars. … Halda áfram að lesa Villi Páls á Skjálfanda
Sigurvin á Skjálfanda
3024. Sigurvin á Skjálfanda í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Björgunarskip Landsbjargar, Sigurvin, sigldi með Villa Páls nýjum báti Björgunarsveitarinnar Garðars yfir Skjálfanda í dag og að bryggju á Húsavík. Sigurvin kom til heimahafnar á Siglufirði í marsmánuði sl. en hann er einn þrettán báta sem Landsbjörg hyggst láta smíða fyrir sig í Finnlandi. Sigurvin er … Halda áfram að lesa Sigurvin á Skjálfanda









