Súlan EA 300

1060. Súlan EA 300. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Súlan EA 300 en myndin var tekin um miðjan janúar árið 1987 þegar Nökkvi HU 15 var sjósettur hjá Slippstöðinni á Akureyri. Súlan tók hann á hliðina inn að slippkantinum. Súlan var 354 brl. að stærð, smíðuð í Fredrikstad í Noregi 1967 fyrir Leó Sigurðsson á Akureyri. Hún … Halda áfram að lesa Súlan EA 300

Víkingur AK 100

220. Víkingur Ak 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Víkingur AK 100 við bryggju á Akranesi sumarið 1986, ef ég man rétt. Víkingur var smíðaður í Þýskalandi 1960 sem síðutogari fyrir Síldar- og fiskimjölverksmiðju Akraness. Yfirbyggður og breytt í nótaskip árið 1977.  Sett var ný brú á Víking sumarið 1989 og var það Slippstöðin á Akureyri sem sá … Halda áfram að lesa Víkingur AK 100

Þórður Jónasson í Krossanesi

264. Þórður Jónasson EA 350 ex Þórður Jónasson RE 350. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Loðnuskipið Þórður Jónasson EA 350 sést hér við bryggju í Krossanesi þar sem verið var að landa úr því. Þórður Jónasson, sem smíðaður var í Noregi og kom til Akureyrar í júníbyrjun árið 1964, var upphaflega RE 350. Hann var smíðaður fyrir … Halda áfram að lesa Þórður Jónasson í Krossanesi

Huginn í Krossanesi

1411. Huginn VE 55. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Huginn VE 55 liggur hér við bryggju í Krossanesi við Akureyri á síðustu öld en hann kom nýr til heimahafnar í Vestmannaeyjum 30. janúar árið 1975. Huginn var smíðaður hjá Baatservice Verft A/S, í Mandal í Noregi, smíðanúmer 617, og var nr. tvö í raðsmíði fjögurra skipa hjá stöðinni fyrir íslenska útgerðaraðila. Eigandi skipsins var Huginn h.f í … Halda áfram að lesa Huginn í Krossanesi

Júpíter ÞH 363

2463. Júpíter ÞH 363 ex Jupiter II FD 235. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Júpíter ÞH 363 var keyptur frá Færeyjum haustið 2004 og kom til heimahafnar á Þórshöfn í október það ár. Í Verinu, sjávarútvegsblaði Morgunblaðsins sagði: NÝTT skip bættist í flota Þórshafnar þegar Júpíter ÞH-363 sigldi í heimahöfn. Fjölmenni var á hafnarbakkanum til að … Halda áfram að lesa Júpíter ÞH 363

Fífill GK 54

1048. Fífill GK 54. Ljósmynd Hafþór hreiðarsson. Fífill GK 54 var smíðaður árið 1967 í Noregi fyrir Einar Þorgilsson & co hf. í Hafnarfirði. Nánar tiltekið hjá Kaarbös Mekaniske Verksted í  Harstad. Fífill GK 54 var 347 brl. að stærð búinn 900 hestafla Wichmann aðalvél. Árið 1974 var skipið lengt og yfirbygg og mældist þá 331 … Halda áfram að lesa Fífill GK 54

Stokksey ÁR 40

1037. Stokksey GK 40 ex Dagfari GK 70. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Stokksey ÁR 40 Hét upphaflega Dagfari ÞH 70 smíðaður fyrir Barðann hf. á Húsavík í Boizenburg í Austur-Þýskalandi.  Hann kom til heimahafnar á Húsavík 17, maí árið 1967. Árið 1977 er skráður eigandi Útgerðarfélagið Njörður hf. en Dagfari var lengst af ÞH 70 eða til … Halda áfram að lesa Stokksey ÁR 40

Nýr Hákon sjósettur í Gdansk

3059. Hákon ÞH 250. Ljósmynd Fésbókarsíða Gjögurs 2023. Hákon ÞH 250, nýtt uppsjávarskip Gjögurs hf., var sjósett í dag hjá Karstensens Skibsværft A/S í Gdansk Póllandi. Áætluð afhending Hákons ÞH 250, sem er 75,4 metrar að lengd og 16,5 metrar á breidd, er í apríl 2025. Með því að smella á myndina er hægt að skoða … Halda áfram að lesa Nýr Hákon sjósettur í Gdansk