Dagfari búinn í slipp

1470. Dagfari ex Salka. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Dagfari hefir verið í slipp á Húsavík að undanförni en fór niður um helgina svona nýskveraður og fínn. Það er Norðursigling á Húsavík sem gerir hann út en Dagfari hét áður Salka.  Báturinn hét upphaflega Hafsúlan RE 77 og var smíðaður í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. í Hafnarfirði árið … Halda áfram að lesa Dagfari búinn í slipp

Sylvía komin heim

1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hvalaskoðunarbáturinn Sylvía kom til heimahafnar á Húsavík í morgun eftir siglingu frá Stykkishólmi. Hún hefur verið í Skipavík sl. fimm mánuði þar sem auk venjulegs viðhalds var m.a skipt um aðalvél og vélarrúmið endurnýjað frá A-Ö. Það er Gentle Giants sem gerir Sylvíu út en … Halda áfram að lesa Sylvía komin heim

Haldið út á flóann

1453. Moby Dick - 1417. Bjössi Sör. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hér halda hvalaskoðunarbátarnir Moby Dick og Bjössi Sör út á Skjálfandaflóa í morgun en öll fyrirtækin sem gera út til hvalaskoðunarferðafrá Húsavík hafa hafið vertíð sína þetta árið. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking … Halda áfram að lesa Haldið út á flóann

Náttfari leggur frá bryggju

993. Náttfari leggur upp í hvalaskoðunarferð. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Norðursiglingarbáturinn Náttfari leggur hér upp í hvalaskoðunarferð út á Skjálfanda í gærmorgun en háhyrningar sýna sig í flóanum þessa dagana. Norðan við flotbryggjuna er Bjössi Sör sem fór einnig í ferð stuttu síðar. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Náttfari leggur frá bryggju

Moby Dick kominn úr slipp

1453. Moby Dick ex Gerpir NK 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hvalaskoðunarbáturinn Moby Dick kom til Húsavíkur nú undir kvöld en báturinn var í slipp á Akureyri. Þar var báturinn skveraður fyrir næstu vertíð sem hefst þann 1. apríl nk. en Sjóferðir Arnars ehf. keypti bátinn frá Norðfirði sl. sumar og hóf siglingar á Skjálfanda. … Halda áfram að lesa Moby Dick kominn úr slipp

Hvalaskoðunarbátar

Hvalaskoðunarbátar á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hvalaskoðunarbátarnir Garðar og Náttfari koma hér til hafnar á Húsavík í dag eftir ferðir dagsins. Við bryggjuna liggur Fanney en allir bátarnir eru í eigu Norðursiglingar. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can … Halda áfram að lesa Hvalaskoðunarbátar

Haukur

1292. Haukur ex Haukur ÍS 195. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001. Hér hvalaskoðunarbáturinn Haukur að leggja upp í hvalaskoðun á Skjálfanda undir stjórn Bjössa Sör. Myndin var tekin í ágústmánuði árið 2001 en um veturinn fór báturinn í gegnum breytingar og sumarið 2002 hóf hann siglingar sem tveggja mastra skonnorta. Haukur er 19 brl. að stærð, … Halda áfram að lesa Haukur

Knörrinn

306. Knörrinn ex Hrönn EA 258. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Það væsti ekki um Knörrinn í morgunblíðu dagsins við Húsavíkurhöfn. Þann 9. mars sl. voru 60 ár síðan báturinn var sjósettur hjá Slippstöðinni á Akureyri en hann hét upphaflega Auðunn EA 157. Hann var smíðaður fyrir þá Kristinn Jakobsson og Garðar Sigurpálsson, Hrísey og áttu þeir … Halda áfram að lesa Knörrinn