1414. Aðalbjörg II RE 236 ex Vinur EA 80. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Aðalbjörg II RE 236 hét upphaflega Vöttur SU 3 og var báturinn var smíðaður árið 1975 í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri. Vöttur mældist 29 brl. að stærð og var búinn 300 hestafla Vovo Penta aðalvél. Snemma árs 1978 var hann seldur til … Halda áfram að lesa Aðalbjörg II RE 236
Flokkur: Bátar
Þorlákur ÍS 15
2446. Þorlákur ÍS 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þorlákur ÍS 15 var smíðaður í Póllandi og kom til heimahafnar í Bolungarvík í ágústmánuði árið 2000. Þorlákur, sem er 29 metrar að lengd, 7,5 metra breiður og 251 brúttótonn að stærð, hefur alla tíð verið gerður út frá Bolungarvík. Skipið var smíðað sem línuskip búið beitningarvél en síðar útbúið til … Halda áfram að lesa Þorlákur ÍS 15
Sjöstjarnan VE 92
760. Sjöstjarnan VE 92 ex Tjaldur VE 291. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sjöstjarnan VE 92 var smíðuð í Danmörku árið 1949 og var 53 brl. að stærð. Í Íslensk skip segir að að báturinn hafi verið skráður í Vestmannaeyjum í desember árið 1952 og þá undir nafninu Tjaldur VE 291. Eigendur Kjartan Ólafsson, Anders Bergesen Hals … Halda áfram að lesa Sjöstjarnan VE 92
Afi Aggi EA 399
399. Afi Aggi EA 399 ex Kári GK 146. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Afi Aggi EA 399 kemur hér að landi á Dalvík í júníbyrjun árið 2005 en hann hafði þá nýlega verið keyptur þangað. Báturinn, sem áður hét Kári GK 146, var smíðaður í Halmstad í Svíþjóð árið 1954 og mældist 39 brl. að … Halda áfram að lesa Afi Aggi EA 399
Lokadagur vetrarvertíðar 11. maí
1420. Kristbjörg ÞH 44. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. 11. maí er lokadagur vetrarvertíðar samkvæmt gömlu tímatali og af því tilefni birtist hér mynd af áhöfninni á Kristbjörginni ÞH 44 draga netin. Myndina tók Hreiðar Olgeirsson þá skipstjóri á Kristbjörgu II ÞH 244, sennilega vorið 1979, en hann tók árið síðar við Kristbjörginni og var með hana til ársins … Halda áfram að lesa Lokadagur vetrarvertíðar 11. maí
Tindur seldur til Marokkó
2017. Tindur ÍS 325 ex Helgi SH 135. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2024. Tindur ÍS 325 hefur verið seldur til Marokkó og kom við í Vestmannaeyjum í vikunni á leið sinni suður til Agadir. Tindur hét upphaflega Þór Pétursson ÞH 50 og var í eigu Njarðar hf. í Sandgerði, smíðaður á Ísafirði 1989. Guðmundur Runólfsson hf. á Grundarfirði … Halda áfram að lesa Tindur seldur til Marokkó
Marietje Marsilla kom í morgun
IMO 9458248. Marietje Marsilla. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024 Hollenska flutningaskipið Marietje Marsilla kom til Húsavíkur í morgun með hráefnisfarm til PCC á Bakka. Marietje Marsilla er með heimahöfn í Delfzijl og var smíðað í Hollandi árið 2010. Skipið er 5,418 GT að stærð, lengd þess er 126 metrar og breiddin 14 metrar. IMO 9458248. Marietje … Halda áfram að lesa Marietje Marsilla kom í morgun
Maggý VE 108
1855. Maggý VE 108 ex Ósk KE 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Dragnótabáturinn Maggý VE 108 kemur hér til hafnar í Sandgerði eftir róður í lok síðustu viku. Maggý, sem gerð er út af Narfa ehf. í Vestmannaeyjum, var smíðuð í Póllandi 1988 og hét upphaflega Skálavík SH 208 frá Ólafsvík. Báturinn, sem er 118 BT … Halda áfram að lesa Maggý VE 108
Valdimar GK 195
2354. Valdimar GK 195 ex Vesturborg GK 195. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Línuskipið Valdimar GK 195 sem Þorbjörn hf. í Grindavík gerir út kom til hafnar í Hafnarfirði í kvöld og þá voru þessar myndir teknar. Valdimar var smíðaður í Noregi 1982 og lengdur 1987. Valdimar ehf. í Vogum á Vatnsleysuströnd keypt skipið til landsins … Halda áfram að lesa Valdimar GK 195
Áskell ÞH 48
2958. Áskell ÞH 48. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Togskipið Áskell ÞH 48 kom til löndunar í Hafnarfirði í hádeginu í dag og þá voru þessar myndir teknar. Það er Gjögur hf. sem gerir Áskel en hann er í hópi sjö systurskipa sem norsk skipasmíðastöðin VARD smíðar fyrir íslenskar útgerðir og þar af tvö fyrir Gjögur hf., … Halda áfram að lesa Áskell ÞH 48









