1475. Sæborg ÞH 55. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæborg ÞH 55 var smíðuð fyrir Húsvíkinga á Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri árið 1977. Í Tímanum 4. mars 1977 sagði svo frá: Síðastliðinn laugardag afhenti bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri nýjan eikarbát 40 lestir að stærð og hlaut hann nafnið Sæborg ÞH-55. Báturinn var smíðaður … Halda áfram að lesa Sæborg ÞH 55
Flokkur: Bátar
Fagranes ÞH 123
586. Fagranes ÞH 123 ex Björg Jónsdóttir ÞH 321.Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggur Fagranesið við bryggju á Húsavík rétt eftir að nafnaskiptin í janúar árið 1985. Báturinn hét áður Björg Jónsdóttir ÞH 321 en hafði verið seldur til Þórshafnar þegar Langanes hf. keypti Gandí VE 171. Fagranesið, sem var 76 brl. að stærð, hét uppgaflega … Halda áfram að lesa Fagranes ÞH 123
Dúddi Gísla GK 48
2640. Dúddi Gísla GK 48. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Dúddi Gísla GK 48 kemur hér að landi í Grindavík vorið 2005 en það var hans heimahöfn. Báturinn, sem heitir Austfirðingur SU 205 í dag, var smíðaður hjá Bátagerðinni Samtak í Hafnarfirði árið 2004. Hann hefur einnig borið nöfnin Ólafur HF 200, Pálína Ágústsdóttir GK 1 … Halda áfram að lesa Dúddi Gísla GK 48
Aron ÞH 105
586. Aron ÞH 105 ex Fargranes ÞH 123. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Aron ÞH 105 kemur hér að landi á Húsavík eftir dragnótaróður á Skjálfanda um árið. Báturinn sem var 76 brl. að stærð hét uppgaflega Guðbjörg ÍS 14 og var smíðuð í V-Þýskalandi árið 1959 fyrir Hrönn h/f á Ísafirði. Báturinn bar síðan nöfnin Hrönn … Halda áfram að lesa Aron ÞH 105
Votaberg SU 10
962. Votaberg SU 10 ex Gestur SU 160. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Votaberg SU 10 frá Eskifirði kemur hér til hafnar á Húsavík eftir úthafsrækjuveiðitúr en skipið var gert út af Eskju á Eskifirði. Upphaflega hét skipið Óskar Halldórsson RE 157 og var smíðaður árið ð1964 í Zandaam í Hollandi fyrir Ólaf Óskarsson útgerðarmann í Reykjavík. Óskar Halldórsson … Halda áfram að lesa Votaberg SU 10
Kristbjörg II í slipp á Akureyri
1009. Kristbjörg II ÞH 244 ex Þuríður Halldórsdóttir GK 94. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Kristbjörg II ÞH 244 er hér í slipp á Akureyri vorið 1992 og niður fór hún fagurrauð sem Kristbjörg ÞH 44. Báturinn hét upphaflega Sóley ÍS 225 frá Flateyri og kom ný til heimahafnar í lok maímánaðar 1966. Smíðuð í Risør í … Halda áfram að lesa Kristbjörg II í slipp á Akureyri
Jóhannes Ívar ÍS 193
1321. Jóhannes Ívar ÍS 193 ex Jóhannes Ívar KE 85. Ljósmynd Björgvin Árnason. Jóhannes Ívar ÍS 193 var smíðaður í Vestnes í Noregi árið 1969 og hét Bye Senior þegar hann var keyptur til landsins árið 1973. Þá fékk hann nafnið Reynir GK 177 með heimahöfn í Sandgerði. Annars er miðinn frá Hauk svona: 1321….Reynir … Halda áfram að lesa Jóhannes Ívar ÍS 193
Ársæll SH 88
1191. Ársæll SH 88 ex Kópur ÁR 9. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Ársæll SH 88 hét hét upphaflega Skálafell ÁR 20 á íslenskri skipaskrá en báturinn var keyptur til landsins frá Noregi árið 1971, þá þriggja ára. Hann átti eftir að bera nöfnin Hegri KE 107, Heimir KE 77 og Kópur ÁR 9 áður en hann … Halda áfram að lesa Ársæll SH 88
Árni Geir KE 74
89. Árni Geir KE 74 ex Ásgeir Magnússon GK 60. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1985. Árni Geir KE 74 hét upphaflega Heimir SU 100 frá Stöðvarfirði og var smíðaður í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk As í Noregi árið 1963. Um bátinn má lesa nánar hér en ef minni ljósmyndarans bregst ekki var myndin tekin haustið 1985. … Halda áfram að lesa Árni Geir KE 74
Kópur BA 175
1063. Kópur BA 175 ex Kópur GK 175. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Línubáturinn Kópur BA 175 frá Tálknafirði kom til Húsavíkur í febrúarmánuði árið 2005 og þá voru þessar myndir teknar. Kópur hét upphaflega Tálknfirðingur BA 325 og var smíðaður í Noregi árið 1968. Eigandi Harðfrystihús Tálknafjarðar. Vorið 1980 kaupir Glettingur hf. í Þorlákshöfn bátinn … Halda áfram að lesa Kópur BA 175









