1420. Örkin ex Keilir SI 145. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Örkin frá Siglufirði kom til Húsavíkur í hádeginu þeirra erinda að fara í slipp en báturinn er í eigu Gunnars Júlíussonar á Siglufirði Það er gaman að geta þess að eftir c.a mánuð eru 50 ár síðan báturinn kom í fyrsta skipti til hafnar á Húsavík … Halda áfram að lesa Örkin kom í dag
Flokkur: Bátar
Stokksnes RE 123
7. Stokksnes RE 123 ex Stokksnes VE 700. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Stokksnes RE 123 hét upphaflega Anna SI 117 frá Siglufirði og var smíðað í Zaandam í Hollandi árið 1960. Sögu bátsins má lesa hér en hann var seldur úr landi árið 2003. Nöfnin sem hann bar voru Anna SI 117, Anna GK 79, … Halda áfram að lesa Stokksnes RE 123
Guðný ÍS 266 í slippnum á Akureyri
483. Guðný ÍS 266 ex Sunnutindur SU 59. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Guðný ÍS 266 er hér í slipp á Akureyri um árið en upphaflega hét báturinn Sunnutindur SU 59 frá Djúpavogi. Sunnutindur SU 59 var smíðaður hjá Gebr. Gehusenstedt K.G. í Bardenfleth í A-Þýskalandi fyrir Búlandstind hf. og kom fyrst til heimahafnar þann 8 febrúar … Halda áfram að lesa Guðný ÍS 266 í slippnum á Akureyri
Eyrún ÞH 2
7449. Eyrún ÞH 2 ex Sigurbára VE 249. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2014. Eyrún ÞH 2, sem hér siglir hér með Húsavíkurhöfðanum á ágústkvöldi árið 2014, hét upphaflega Guðfinna VE 249. Báturinn var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1996. Báturinn hefur borið nafnið Eyrún ÞH 2 frá árinu 2000 og heimahöfn hans Húsavík. Með … Halda áfram að lesa Eyrún ÞH 2
Andvari VE 100
1054. Andvari VE 100 ex Drífa ÁR 300. Ljósmynd Hörður Harðarson. Andvari VE 100 hét upphaflega Drífa RE 10 og var smíðuð hjá Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi árið 1967. Drífa var fyrsta stálskipið sem Þorgeir og Ellert hf. smíðuðu og var hún ríflega 100 brl. að stærð. Drífa RE 10 var seld árið … Halda áfram að lesa Andvari VE 100
Galti ÞH 320
973. Galti ÞH 320 ex Ljósfari RE 102. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Galti ÞH 320 kemur hér til Húsavíkur eftir að Brík hf. keypti bátinn af Útgerðarfélaginu Barðanum í febrúarmánuði árið 1987. Brík hf. var þá nýstofnað félag í eigu Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf. og Langaness hf. á Húsavík. Galti hét upphaflega upphaflega Dagfari ÞH 40 … Halda áfram að lesa Galti ÞH 320
Húnaröst ÁR 150
1070. Húnaröst ÁR 150 ex Víðir NK 175. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Húnaröst ÁR 150 kemur hér að bryggju, eða utan á annan bát, á Akureyri um árið. Húnaröstin hét upphaflega Gissur Hvíti SF 1 og var smíðuð í Sönderborg í Danmörku árið 1968. Í 1. tbl. Ægis árið 1995 mátti m.a lesa þetta: Húnaröstin var … Halda áfram að lesa Húnaröst ÁR 150
Heiðrún EA 28 í breytingum í Vestnes
72. Heiðrún EA 28 ex Grótta AK 101. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1987. Heiðrún EA 28 er hér í breytingum en hún var yfirbyggð og skipt um brú í Aas Mek. Verksted AS í Vestnes í Noregi sumarið 1987. Hér má lesa nánar um bátinn en Gylfi Baldvinsson á Árskógssandi keypti hann frá Akranesi árið 1984. … Halda áfram að lesa Heiðrún EA 28 í breytingum í Vestnes
Faxaborg SH 207 í slipp
257. Faxaborg SH 207 ex Sigurvon Ýr BA 257. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Faxaborg SH 207 hét upphaflega Sigurvon RE 133 og var smíðuð í Risør í Noregi árið 1964. Lengst af hét báturinn Sigurvon ÍS 500 og var gerð út frá Suðureyri. Hér má lesa nánar um bátinn en hann var yfirbyggður 1985 um leið … Halda áfram að lesa Faxaborg SH 207 í slipp
Arnar KE 260
1968. Arnar KE 260. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Arnar KE 260 kemur hér til hafnar í Keflavík um árið en það var hans heimahöfn. Arnar var smíðaður í Risør í Noregi árið 1987 en keyptur til Íslands ári síðar. Arnar var lengdur í tvígang, fyrst á Seyðisfirði og síðar á Akranesi og mælist nú 60 brl. að stærð. … Halda áfram að lesa Arnar KE 260









