686. Arnarborg HU 11 ex Arnarborg KE 26. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Arnarborg HU 11 liggur hér við bryggju á Skagaströnd um árið en Hólanes hf. keypti bátinn þangað árið 1986. Upphaflega hét báturinn, sem smíðaður var í Danmörku árið 1958, Hafnarey SU 110 með heimahöfn á Breiðdalsvík. Báturinn var 78 brl. að stærð og átti … Halda áfram að lesa Arnarborg HU 11
Flokkur: Bátar
Alli Júl ÞH 5
1487. Alli Júl ÞH 5 ex Ásbjörg RE 79. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Alli Júl ÞH 5 kemur hér til hafnar á Húsavík í desembermánuði árið 1999 og hafði þá verið að veiðum sunnan við land ef ég man rétt. Upphaflega hét báturinn Ásbjörg ST 7 frá Hólmavík en hún var síðust í röð 50 … Halda áfram að lesa Alli Júl ÞH 5
María Júlía á siglingu fyrir Bjargtanga
151. María Júlía BA 36 ex björgunar- og varðskipið María Júlía. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Þessa flottu mynd tók Jón Páll Ásgeirsson c.a 1977-8 en hún sýnir Maríu Júlíu BA 36 á siglingu fyrir Bjargtanga. María Júlía var smíðuð sem björgunar- og varðskip í Frederikssund Skibsværft í Frederikssund í Danmörku árið 1950 fyrir Ríkissjóð Íslands. … Halda áfram að lesa María Júlía á siglingu fyrir Bjargtanga
Dalaröst ÁR 63
1639. Dalaröst ÁR 63 ex Jón Bjarnason SF 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Dalaröst Ár 63 kemur að bryggju á Húsavík um árið en báturinn var þarna nýkeyptur til Húsavíkur. Útgerðarfélagið Flóki ehf. keypti hann frá Þorlákshöfn og skömmu síðar varð Dalaröstin ÞH 40. Báturinn var smíðaður í Noregi 1978 en keyptur til landsins fjórum … Halda áfram að lesa Dalaröst ÁR 63
Dagfari kastar nótinni
1037. Dagfari ÞH 70. Ljósmynd Skarphéðinn Ívarsson. Dagfari ÞH 70 kastar hér loðnunótinni um árið en það var Njörður hf. sem gerði hann út. Dagfari var smíðaður fyrir Barðann hf. á Húsavík í Boizenburg í Austur-Þýskalandi. Hann kom til heimahafnar á Húsavík 17, maí árið 1967. Árið 1977 er skráður eigandi Útgerðarfélagið Njörður hf. en … Halda áfram að lesa Dagfari kastar nótinni
Skúmur KE 122
450. Skúmur KE 122 ex Sigurvin Breiðfjörð KE 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skúmur KE 122 hét upphaflega Geir KE 1 og var var smíðaður árið 1956 í Þýskalandi. Í lok árs 1964 var Geir seldur frá Keflavík tl Reykjavíkur og fékk varð Geir RE 406. Hér má lesa sögu bátsins en nafnið Skúmur bar hann … Halda áfram að lesa Skúmur KE 122
Maggý VE 108
1855. Maggý VE 108 ex Ósk KE 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Dragnótabáturinn Maggý VE 108 kemur hér til hafnar í Sandgerði eftir róður sl. vor. Maggý, sem gerð er út af Narfa ehf. í Vestmannaeyjum, var smíðuð í Póllandi 1988 og hét upphaflega Skálavík SH 208 frá Ólafsvík. Báturinn, sem er 118 BT að stærð, … Halda áfram að lesa Maggý VE 108
Garðar GK 53
1305. Garðar GK 53 ex Benni Sæm GK 26. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Garðar GK 53 hét upphaflega Auðbjörg HU 6 frá Skagaströnd og var smíðaður árið 1973 í Skipavík hf. í Stykkishólmi. Frá Skagaströnd fór báturinn á Hauganes við Eyjafjörð og varð Auðbjörg EA 22, þetta var árið 1977. Árið 1988 var báturinn seldur til … Halda áfram að lesa Garðar GK 53
Örkin nýskveruð og fín
1420. Örkin ex Keilir SI 145. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Örkin fór niður úr Húsavíkurslipp í fyrradag nýskveruð og fín og stefnan sett á heimstím til Siglufjarðar. Um Örkina má lesa nánar hér. 1420. Örkin ex Keilir SI 145. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson 2025. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í … Halda áfram að lesa Örkin nýskveruð og fín
Benni Sæm GK 26
305. Benni Sæm GK 26 ex Björgvin á Háteigi GK 26. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Benni Sæm GK 26 kemur hér að landi í Keflavík um árið en þegar myndin var tekin var hann að dragnótaveiðum í Bugtinni á Faxaflóa. Upphaflega hét báturinn Auðbjörg HU 6 frá Skagaströnd og var smíðaður árið 1973 í Skipavík hf. … Halda áfram að lesa Benni Sæm GK 26









